Ég er farinn að halda það að það felist einhver draugur í útvarpinu mínu, en oft þegar ég vill hækka / lækka - þá annaðhvort gerir hann ekkert, hækkar þegar ég reyni að lækka (og öfugt). En þegar þetta virkar, þá þarf að snúa upp á hendina til að heyra einhvern mun.
Ekki nóg með það, stundum þegar ég hlusta á 90.9 (Gullbylgjan) og set hitann á afturrúðuna, þá dettur þessi stöð út (bara 90.9). Síðan skýst hún inn þegar ég slekk á hitanum.
Hafið þið lent í svipuðu? Hvað er hægt að gera við þessu?
Takk

