íbbi_ wrote:
já það er það, enda er hann orðinn helvíti þungur,
en vw meiga samt eiga það.. að þeir koma með sona græjur á færiböndum núna, undir ýmiskonar merkjum
Íbbi er að sjálfsögðu að vitna rétt enda veit hann alveg hvað hann syngur
Audi-inn er þungur, sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn og M5 skilar í raun meira en 507 hestöflum þannig að það ætti ekki vera neitt voðalega skrítið að hann geti verið (og sé) fljótari í 200...
En eins og ég sagði við Svein í dag þá snýst dæmið kannski við í rigningu
Sem skiptir svosem engu máli. Það sem skiptir máli og það held ég að sé sterka hlið RS6 en það er millihröðun.
Það er stutt síðan ég keyrði 997 Turbo cab og millihröðun í þeim bíl á milli 70 og 100 km/klst er aðeins 1 sekúnda! Ég hugsa að Audi-inn eigi eftir að verða sterkur sem framúrakstursverkfæri og hin besta skemmtun.