Hvernig væri að menn sem eiga sjálfir 330D myndu bara finna sínar eigin upplýsingar, það er ekkert mál að tjúnna svona bíl og "box-tuning" fæst nánast í hvaða búllu sem er í Þýskalandi. Ég hef setið í þessum bíl og keyrt hann sjálfur, gaf honum hressilega inn og þess má til gamans geta að á þeim tíma átti ég E39 M5. Þetta mokvinnur og er í alla staði fallegur og vel viðhaldinn bíll.
Ef að lesendur hafa athugasemdir við auglýsinguna að þá er ekkert mál að senda einkapóst í stað þess að vefengja orð seljanda opinberlega og búa til rifrildi fyrir alla að lesa. Það eru 2-3 aðilar sem hafa kommentað á auglýsinguna sem hefðu betur sent einkapóst, þetta er jú ekki ykkar bíll og akkúrat þess vegna þekkið þið ekki staðreyndir málsins. Ef að þið krefjist þess að þið séuð mataðir með upplýsingum um nöfn á öllum aukahlutum og Dyno-sheet til að bakka upp hestafla- og togtölur, þá er alltaf hægt að spyrja á elegant hátt eða hreinlega senda einkapóst.
Með kveðju.
