BMW - 730iA - E32 - V8 [SELDUR]

Hér getur þú auglýst BMW-inn þinn til sölu.

BMW - 730iA - E32 - V8 [SELDUR]

Postby JónP » Tue 11. Sep 2007 02:12

* Framleiddur seint 1993 en skráður sem 1994 árgerð.
* Ekinn 307.xxx km.
* M60B30.
* Svart leður.
* Rafmagn í: rúðum, sætum frammí, speglum og hiti í speglum.
* Tvívirk rafdrifin topplúga.
* Sjálfskiptur.
* Kastarar.
* Loftkæling.
* Sterlingsilber metallic.
* Hiti í öllum sætum.
* Alpine spilari, ekkert mjög nýlegur en virkar sem skyldi.
* Mjög nýleg Yokohama sumardekk á 15" original felgunum.
* Glær stefnuljós að framan.
* Innfluttur frá Þýskalandi einhvern tímann keyrður rétt undir 200.000 km.

* Hef tvisvar mælt eyðslu. Þó bara á langkeyrslu og var hún á milli 10 og 11 lítrar.


Viðhald og annað:

* Ný framrúða.
* Nýlegur vatnslás.
* Nýir diskar og klossar að framan (eitthvað brembo stuff).
* Nýlegir klossar að aftan.
* Ekki langt síðan skipt var um vökva og síu á skiptingu .
* ipod snúra leidd fram út um hanska hólfið. Mjög þægilegt.


Það sem setja mætti út á:

* Ryð á sumum stöðum, aðallega fyrir neðan lista á hliðum.
* Vantar 1/3 af lippinu á framstuðaranum eftir árekstur við tófu.
* Stöðuljós (eða hvað sem þetta er kallað að aftan) sprungið.
* Aðalljósaperulugt bílstjóramegin er með nokkrar sprungur.
* Ekkert útvarpsloftnet (slæm skilyrði úti á landi).
* Dæld á annarri afturhurðinni. Ekki lakkskemmd þó.
* Sprungin pera sem lýsir upp bensín- og hraðamæli í mælaborðinu.
* Virðist leka smurolíu. Ég þarf að bæta á öðru hverju. Ekkert svo oft.
* Gæti verið gat einhversstaðar á pústi. Hljómar þannig.


Þessi bíll keyrir vel, skiptir vel og bremsar vel. Ekki mikil fegurðardís kannski en ef einhver getur sætt við sig það þá er hægt að íhuga þennan.
Losna þarf við einhver atriði í listanum til að fá 08 skoðun en ekkert öll þó
langskemmtilegast sé að hafa allt í lagi.
Hann hefur aldrei bilað þannig séð hjá mér. Aldrei verið stopp með hann.
Viðbragðið er ekkert svaðalegt frá 0 km hraða en frá svona 60 og uppúr er hann nokkuð sprækur.

Bílnúmer er NO-069. Skoðaður 07.

Læt eina mynd fylgja með. Eini munurinn er að hann er með glær
stefnuljós að framan núna.



Image



Verðhugmynd 180 þús

Einnig gæti verið möguleiki á að taka einhverjar "druslur" upp í
sem eru sparneytnar og eru skoðaðar 08 allavega. Þá er ég að tala
um bíla sem ekki kosta meira en 50 þús.

Endilega komið með fyrirspurnir, tilboð eða einhverjar skiptivangaveltur í
PM. eða síma 8489852 eftir 15:00 á daginn.
Last edited by JónP on Sun 30. Sep 2007 11:33, edited 3 times in total.
E34 540 '93
E34 525 '92 (seldur)
E32 730 V8 '94 (seldur)
E34 525 '94 (seldur)
JónP
Kassabílstjóri
 
Posts: 131
Joined: Fri 17. Jun 2005 01:45

Postby Alpina » Tue 11. Sep 2007 07:15

hehe 306.xxx

það er ágætt
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby Sezar » Tue 11. Sep 2007 09:12

Alpina wrote:hehe 306.xxx

það er ágætt


Iss!
Rétt búið að tilkeyra hann :wink:
User avatar
Sezar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2731
Joined: Sun 02. Nov 2003 23:40

Postby skaripuki » Tue 11. Sep 2007 09:23

þú ert ekki beint að gefa hann en allavega bíð 25 þús
Image

Seldir:

e39 520 2003
e46 318 2000
User avatar
skaripuki
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 431
Joined: Fri 29. Sep 2006 12:08
Location: Norðlingaholtið

Postby JónP » Tue 11. Sep 2007 13:23

Hehe já aksturstalan er kannski há en ekki alltaf hægt að miða
ástandið út frá því.

(skaripuki) Endilega eigðu þennan 25 þús kall :D Of lágt hjá þér...
E34 540 '93
E34 525 '92 (seldur)
E32 730 V8 '94 (seldur)
E34 525 '94 (seldur)
JónP
Kassabílstjóri
 
Posts: 131
Joined: Fri 17. Jun 2005 01:45

Postby JónP » Tue 25. Sep 2007 12:40

TTT

Aðeins breytt aksturstala og búinn að skipta um aðalljósaperu. :)
E34 540 '93
E34 525 '92 (seldur)
E32 730 V8 '94 (seldur)
E34 525 '94 (seldur)
JónP
Kassabílstjóri
 
Posts: 131
Joined: Fri 17. Jun 2005 01:45

Postby JónP » Thu 27. Sep 2007 09:43

TTT komin verðhugmynd...
E34 540 '93
E34 525 '92 (seldur)
E32 730 V8 '94 (seldur)
E34 525 '94 (seldur)
JónP
Kassabílstjóri
 
Posts: 131
Joined: Fri 17. Jun 2005 01:45


Return to Til sölu - BMW

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 26 guests