flatbeat wrote:
Geirinn wrote:
Þú ert s.s. að tala um græjusnúrur í E30, frá spilara aftur í skott.
Það sem ég gerði og félagi minn líka var að taka snúruna frá spilaranum í gegnum plastið sem er yfir pedulunum og niður með plastinu sem er fyrir hátalarann bílstjóramegin frammí.
Þegar þú ert kominn þangað þá ferðu UNDIR TEPPIÐ en ekki undir listann.
Nú segirðu ekki hvort þetta sé 2door eða 4door en ef þetta er 4 door þá heldurðu bara áfram eins og þú getur undir teppinu alveg undir aftursætið og í gegnum gat þar.
Í 2 door þá minnir mig að við höfum farið meðfram einingunni sem er undir glugganum og þar undir afturbekk og þaðan aftur í skottið.
Vona að þetta hjálpi þér.
Hjálpar aðeins, en núna er ég ekki alveg klár á því hvernig maður kemur snúrunni undir teppið án þess að fjarlægja listann

Verður að fjarlægja listann, passaðu þig bara á því að þeir eru mjög auðbrjótanlegir, ég hef m.a. brotið svona sjálfur, það gerðist þó ekki í fyrstu skiptin sem ég tók svona af
Trixið er eins og fleiri hafa bent á hér, að reyna að renna þeim af.
Þetta er eins og margir hlutir í bílum, liggur við ekki framleitt til að hreyfa við þessu, smellurnar eru amk. mjög viðkvæmar.