Bjarki wrote:
Alltaf talað um að rafkerfi bíla verði 24V stýrið verði rafdrifið og bílarnir eyða minna.......
Næsti staðall sem bílaframleiðendur hafa komið sér saman um að styðja er
42 Volt. Ætlunin er að með hærri spennu verði hægt að fækka sem flestum pörtum sem í dag eru drifnir af beltum tengdum vélinni.
(Enn sem komið er verðum við samt að gera ráð f.a.m.k. að alternator sé tengdur vél með belti pg að það breytist ekki).
Ástæðan f.því að hagkvæmara er að knýja sem flest kerfi bílsins áfram með raforku frekar en eldsneyti (lesist: belti tengt í vélina) er sú að aðeins í kringum 30% orkunnar í eldsneyti nýtist í að koma bílnum áfram - afgangurinn tapast í hitageislun og kerfi sem sníkja afl af vélinni (tengd með beltum).
Ljóst er einnig að með hærri spennu verður hægt að notast við grennri víra (lægri straumur), það eitt gæti sparað töluvert af kopar f.framleiðanda.
Reiknað er með að um helmingur bíla verði útbúinn 42V kerfum árið 2010.
Nýji staðallinn er í umsjá MIT, þeir eru með eitthvað af upplýsingum, því miður ekki vel skipulagt á:
http://mit42v.mit.edu