bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Tue 24. Jun 2025 23:25

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 3 posts ] 
Author Message
 Post subject: Smá Glens...
PostPosted: Tue 04. Sep 2007 02:26 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 17. Feb 2004 15:36
Posts: 1739
Location: Kópavogur
Jæja ég ákvað svona í tilefni þess að ég er andvaka og mér leiðist að setja hér inn nokkra góða :lol:

Gömul kona gengur inn í banka með fullan poka af seðlum og ætlar hún aðleggja peningana inn. Hún heimtar að fá bankastjórann til að afgreiða sig.
Það er venjulega ekki hægt í þessum banka en þar sem hún er með svo mikla peninga ákveður afgreiðslufólkið að ná í bankastjórann
(viðskiptavinurinn hefur alltaf rétt fyrir sér)... Bankastjórinn spyr gömlu konuna hve mikið hún ætli að leggja inn. "14 milljónir króna" segir gamla konan og skellir pokanum á borð stjórans. Hann er auðvitað forvitinn og ákveður að spyrja um hvar hún hefði fengið alla þessa peninga??? gamla konan svarar: ég vinn mörg veðmál. "Veðmál, já... hvernig veðmál ?" spyr bankastjórinn konuna. "bara einsog, ég veðja við þig 2 milljónum að þú ert með þríköntuð eistu!!!" bankastjórinn hlær og segir að þetta sé heimskulegt veðmál. Konan skorar á hann og bankastjórinn tekur veðmálinu... "En þar sem það eru
mjög miklir peningar í húfi, er þá ekki í lagi að ég taki lögfræðinginn minn með sem vitni á morgun kl. 10 ?" Bankastjórinn hafði ekkert á móti því og var viss um að hann mundi vinna...
Þetta sama kvöld var bankastjórinn orðinn mjög taugaóstyrkur og eyddi miklum tíma fyrir framan spegilin heima hjá sér, skoðandi eistun með því að snúa þeim í allar áttir. hann hætti ekki fyrr en hann var viss um að hann mundi vinna veðmálið...
Næsta morgun, nákvæmlega klukkan 10, birtist gamla konan og lögfræðingurinn hennar fyrir utan bankastjóraskrifstofuna. Hún kynnti bankastjóran og lögfræðinginn en endurtók síðan veðmálið "ég veðja 2 milljónum á að bankastjórinn sé með þríköntuð eistu!" Bankastjórinn játaði veðmálinu og gamla konan sagði honum að fara úr buxunum. Hann gerði það og gamla konan pírði augun vel og lengi.. hún bað síðan um að mega koma við þau til að finna hvernig þau væru í laginu. "ok, 2 milljónir eru mikið af peningum svo ég giska að þú verðir að gera það bara svo við séum örugg!!!"
Nákvæmlega þá, tók bankastjórinn eftir hvar lögfræðingurinn var að lemja hausnum í vegginn, alveg hljóðlaust. Bankastjórinn spurði gömlu konuna "hvað í andskotanum er að lögfræðingnum þínum???"
Hún svaraði "ekkert, nema það að ég veðjaði við hann um 8 milljónir að nákvæmlega klukkan 10 væri ég með eistu bankastjórans í höndunum!!!"

..........................................................................................................................................................................................................................................................................................................

Maður einn fær skelfilegan hausverk í vinnunni, ákveður að taka sér frí eftir hádegi og fer heim.
Þegar hann kemur heim, fer hann inn í eldhús, finnur magnyl og tekur tvær.
Svo heyrir hann tónlist, fer upp á loft og kemur að konu sinni með dvergi.
Hann öskrar á hana: "Hundrað sinnum hef ég fyrirgefið þér þetta endalausa framhjáhald, þú lofaðir fyrir viku að hætta og svo kem ég að þér svona!"
Konan lítur á hann og segir: "Vertu ekki að æsa þig elskan, sérðu ekki að ég er að reyna að minnka við mig?"

..........................................................................................................................................................................................................................................................................................................

Þannig var að father O´Reilly hafði verið í skriftastólnum allengi og þurfti að bregða sér frá í smá stund. Hann bað því ungan aðstoðarprest að leysa sig af. Unga prestinum var brugðið..hafði aldrei gert þetta áður, en O'Reilly sagði honum að þetta væri ekkert mál og lét hann hafa bók þar sem í stóð hvað ætti að gefa fyrir hverja synd sem játuð var. Fyrst kom ung stúlka: faðir ég hef syndgað ég kyssti strák. -kysstir strák já..ungi presturinn fór í bókina, fletti upp á K og..já þarna stóð það..18 maríubænir. Síðan kom hugguleg ljóska og settist í stólinn: Fyrirgefðu mér faðir ég hef syndgað..ég gaf ókunnugum manni blow job og hafði endaþarmsmök við hann á eftir! -presturinn leitaði lengi í bókinni en fann ekkert um þetta og var alveg ráðalaus. Hann leit út um hurðina til að sjá hvort O'Reilly væri ekki að koma, en sá aðeins kórdreng nokkurn sem var að þrífa kirkjugólfið. -Pssst ..þú þarna kórdrengur., hvað gefur father O'Reilly fyrir blow job og endaþarmsmök? -Jaa... ég fæ venjulega bara prins póló og appelsín!

_________________
...Mazda 323F 98'...

S.S.S
"We are all born ignorant, but one must work hard to remain stupid." -Benjamin Franklin


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 04. Sep 2007 15:37 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Sat 09. Apr 2005 21:38
Posts: 228
Góður, Hefuru annars ekkert að gera?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 04. Sep 2007 16:08 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Wed 20. Sep 2006 08:47
Posts: 436
Hahaha, þessi síðasti er algjör perla.

_________________
BMW 320 E90 2006
Jeep Grand Cherokee 38" 5.9
BMW 323 E36 - Seldur
BMW 320I E36 - Seldur
BMW 330 SMG - Seldur


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 3 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 41 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group