Aron Andrew wrote:
Zeus wrote:
Angelic0- wrote:
jæja, allt komið á fullt hérna... eftir því ég best veit...
góðir gaurar að sjá um að gera og græja fyrir mig meðan að ég er í smá "hvíld"

Þú átt nú alveg skilið á góðri hvíld Viktor. Mætti kalla þetta sumarfríð þitt

Ætti nú bara skilið lengri "hvíld" miðað við fyrri "störf"!

Hvað meinaru....
Nú ætla ég að leggja fyrir þig dæmi:
"Þú ert ölvaður í miðbæ Reykjavíkur. Maður labbar upp að þér og rykkir í hálsmálið á þér og þú snýrð þér við. Um leið og þú snýrð þér við færðu högg í grímuna."
hvað geriru ?
"Þú átt SR20DE mótor, sendir hann í Kistufell. Eyðir tæplega 300þ í að kaupa GO-FAST dót og leika þér aðeins með hann og lætur púsla saman. Stuttu eftir að brettið með nýsamsetta mótornum er komið heim til þín er mótornum stolið. Þú finnur út hver stal mótornum og stuttu seinna hittiru hann. Þegar að þú ferð að krefja aðilann sem að stal mótornum svara er þér réttur puttinn og svo slær aðilinn í áttina að þér."
hvað geriru ?
"Þú ert á djamminu og stendur fyrir utan skemmtistað og ert að tala í símann. Maður labbar upp að þér og skallar þig bara upp úr þurru."
hvað geriru ?
Ég er að sitja af mér svona þvælu vegna þess að ég er með stuttan þráð. Ég hef sýnt umtalsverða bætta hegðun og þessvegna þarf ég að sitja í 2mán en fæ að komast á vernd 16.sep. restin er skilorðsbundin en ef að ég rýf skilorð get ég setið uppi með að sitja inni í allt að 1 til 1 og hálft ár.
Ég hef lært það á þessari frelsis-sviptingu að þetta borgar sig ekki og því ætla ég að tempra mig. Núna hef ég öðlast tækifæri til þess að byrja lífið upp á nýtt og það ætla ég að gera. Ég er skuldlaus allstaðar (nema þetta mál með hann Gaulza en það kemur ykkur ekkert við) og er að fara að koma mér niður á jörðina þegar að ég kem út.
Settu þig í mín spor Aron áður en að þú ferð að segja að ég hafi fengið of vægan dóm
