Búinn að vera að fara í gegnum myndir....
FIMMTUDAGUR:
Svaf út

Fínt að fá smá pásu eftir dagana á undan.
Fékk bílinn lánaðan hjá Galinu til að kíkja á verkstæðið til að
taka status. Ræddi aðeins við Hr. Eckstein - þann sama og ég var
að díla við árið áður varðandi bláa. Var að ítreka það við hann
að skoða bílinn vel núna þannig að ef þetta væri ekki EWS að við
myndum ekki komast að því seint á föstudag og vera stopp yfir
helgina.
Hann fór að segja að þeir héldu nú að þetta væri kannski ekki EWS þar sem
startarinn snéri vélinni. Þeir héldu að það ætti ekki að gerast
ef EWS væri ónýtt. Mér leist ekki á þetta þannig að nú var hringt
til Dóminikanska lýðveldisins og þeir Sebastian og Oliver vaktir,
klukkan hjá þeim 07:00.
Þeir voru vissir um að þetta væri EWS og það væri eðlilegt að
mótorinn snérist - þeir höfðu lent í þessu áður og það lýsti sér
nákvæmlega svona. Það sem þeir hjá umboðinu væru að tala um væri
í nýrra EWS, þe. útgáfu 3 en það væri útgáfa 2 í hvíta.
Á leiðinni heim fékk ég síðan símtal frá Eckstein þar sem hann
sagði að það væri komið upp mögulegt vandamál......
VIN númerið sem var utan á mótortölvunni var ekki það sama og þeir
voru að lesa af tölvunni í gegnum tölvutengið. Þannig að það EWS
sem var í pöntun gæti mögulega ekki virkað með þessari tölvu.
Þannig að við settum aðra pöntun í gang með númerinu sem þeir lásu
af tölvunni. Þannig að ef stykkið sem kæmi á föstudeginum myndi
ekki ganga þá myndum við fá hitt á laugardeginum.
Slappaði bara af restina af deginum.
FÖSTUDAGUR:
Dagurinn byrjaði ekki vel - það var ÞOKA. Fúlt þar sem Oldtimer
Grand Prix (
http://www.avd.de/ogpracing/index.shtml) var
um helgina og þeir áttu að keyra Nordschleife í dag.
Það var hins vegar ekki að fara að gerast - Ringhaus þarna í þokunni......

Labbaði niður að inngangnum á brautina - þessi jaxl kom út úr þokunni:

Frekar rólegt.....



Enginn bissness í bráð hjá þessum:

Labbaði síðan upp á hótel aftur og á leiðinni hrindi Eckstein og sagði að bíllinn
væri til

EWS græjan sem kom var að vísu ekki með rétt númer en tölvugúruinn
á verkstæðinu fékk þetta til að virka.
Fékk Galinu til að skutla mér til að ná í dýrið.
Þarna má sjá CSL bílinn hans Gaute - helvíti flott paintjobb


Þegar ég kom aftur til Nurburg var þokan enn þétt þannig að það var ekkert
keyrt á slaufunni - búið að aflýsa Oldtimer Grand Prix keyrslunni


Fór og þreif hvíta og skellti mér síðan á Pistenklause til að fá mér að borða - snilldarstaður.
http://www.am-tiergarten.de/de/restaurant/Algjört möst að fara þarna og borða ef menn eru í Nurburg - algjör gírhausastaður
með frábæran mat. Þess má geta að fjölskylda Sabine Schmitz á staðinn.
Fyrir utan staðinn var þessi ofurkerra:


Fór síðan upp á hótel og ákvað að fara bara snemma að sofa og vera úthvíldur
fyrir átökin daginn eftir.
_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR

Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...