by Jss » Fri 29. Aug 2003 00:29
Geðveikur bíll, var fyrst að skoða myndirnar núna. Hef alltaf haf stóran soft spot fyrir Cobrum og er það einn þeirra bíla sem mig langar mest til að eignast og þá 427 ci bílinn, eitthvað voða heillandi við það að hafa 7 lítra V8 vél fyrir framan sig. Mér hefur alltaf þótt þessir bílar gífurlega fallegir og eru rómaðir fyrir skemmtilega aksturseiginleika. Það er ekki að ástæðulausu sem mjög margir eru að gera Cobra kit bíla úti í heimi og meira að segja 1 þannig hér á landi.
Varðandi vöntun á veltibúri þá er veltigrind ökumannsmegin í þessum bílum (krómaði boginn á bílnum (jú ökumannsmegin)).