BMW Fahrerlehrgang 2007

Hér skal spjalla um BMW.

Postby bimmer » Wed 15. Aug 2007 00:20

Sveinbjörn ég veit ekki alveg á hvaða besserwissertrippi þú ert á
núna. Ég sagði aldrei neitt um að standa hann flatann í gegn.

Sagði bara að þetta væri fjórða gírs kafli. Bensíngjöfin er ekki
on/off rofi, það eru millistig.

Varðandi þetta atvik þá kúplaði ég ekki heldur sló af og einbeitti
mér að því að rétta bílinn af.

Ekkert kúplað fyrr en skipt var niður í þriðja til að halda áfram.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby bimmer » Wed 15. Aug 2007 00:25

ÞRIÐJUDAGUR:

Nú var aftur hópunum stillt upp á beina kaflanum en í þetta skipti
var veðrið ekki gott - skýjað/þoka:

Image


Image

Prófessorinn og Andrew að ræða saman - Maseratiinn alveg að gera sig:

Image

Image

Daginn áður var búið að fara í gegnum eftirfarandi kafla:

Hatzenbach
Quiddelbacher Höne -> Aremberg
Fuchsröhre -> Adenauer Forst
Kellenhardt -> Wehrseifen

Í dag átti að taka eftirfarandi kafla fyrir hádegi:

Exmuhle -> Bergwerk
Kesselchen -> Klostertal
Karussel -> Hohe Acht

Hér er mynd af breutinni með nöfnunum:
Image

Maður varð að taka því rólega í bleytunni - hér er hópurinn í byrjun fyrsta
rönnsins og ég sagði einmitt við Michel kennara að Bergwerk gæti orðið
áhugavert í bleytunni.

Image

Þessi spá var ekki lengi að rætast - hér erum við búin með Bergwerk og einn
norsarinn búinn að lenda í vandræðum:
Image

Hann hafði komið of hratt inn í beygjupunktinn inn í Berkwerk og í stað þess að
ná að beygja inn þá hélt hann beint áfram og skrapaði vinstri hliðina eftir
vegriðinu:
Image

Image

Image

Image

Semsagt beyglur/rispur eftir allri hliðinni, báðar felgur rispaðar og svo var
afturfelgan skökk - beyglaðir armar í afturfjöðruninni. Kappinn varð því að
skakklappast til baka og fara út við Breidscheid.

Við hin héldum áfram og nú var komið að Kesselchen til Klostertal kaflanum.
Þetta gengur þannig fyrir sig að fyrst þegar við komum að nýjum kafla þá setjum
við rautt flagg í keilu sem stendur á miðri brautinni. Þetta þýðir að enginn
má fara inn á svæðið. Eftir þetta keyrum við á eftir kennaranum í gegnum kaflann.
Þetta er gert til að ganga úr skugga um að bílarnir frá hópnum á undan séu örugglega
farnir og þeir búnir að setja upp rautt flagg við byrjun næsta svæðis.

Hér erum við svo að snúa við og keyra til baka:
Image

Image

Svo er bílunum lagt við byrjun kaflans:
Image

Eftir að allir eru búnir að leggja þá fer Michel ásamt öðrum leiðbeinanda með
okkur sem farþega í gegnum kaflann. hann er á 335i twinturbo Touring með
fjórhjóladrifi. Alveg fínasta græja og hann keyrir hann alveg hressilega.
Svo á leiðinni aftur til baka keyrir hann hægt og rólega og gefur okkur tips
og tricks varðandi hvar við eigum að vera í beygjunum. Fullt af áhugaverðum
punktum sem eru byggðir á áratuga reynslu af hringnum.

Þegar allir eru búnir að fá svona rúnt þá keyrum við kaflann 3-4 sinnum og
þá er Michel á mismunandi stöðum að fylgjast með. Þegar maður fer til baka
á milli rönna þá stoppar hann mann ef það er eitthvað sem þarf að laga.

Hver svona kafli var að taka sirka klukkutíma og korter.

Eitt sem var ansi skemmtilegt við þetta er það að keyra til baka á milli rönna -
brautin er mjög áhugaverð í öfuga átt!!!! Kaflar sem manni finnst ekki vera
brattir niður eða upp virka oft miklu ýktari þegar ekið er í hina áttina.
Hér er svo Karussel í öfuga átt - frekar funky:
Image

Nú fór hins vegar bleytan að aukast og ég fór að komast að því að E30 heldur
illa vatni:
Image

Vatn var að koma inn bæði farþegamegin og bílstjóramegin.....

Hér erum við svo að keyra í mat:
Image

Eftir mat var svo byrjað á að keyra allan hringinn í klukkutíma session - fyrst
2 hringi í réttri röð og svo eftir það mátti taka framúr. Þetta var vægast sagt
áhugavert á semislikkum :)

Eftir þetta session var svo haldið áfram með kaflana og nú voru það:

Wippermann -> Brunnchen
Pflanzgarten
Schwalbenschwanz -> Galgenkopf

Hér erum við að byrja seinasta kaflann:
Image

Þegar hér var komið við sögu voru farin að heyrast undarleg "click" hljóð innan
úr hvíta og þau voru að koma frá holu sem var fyrir framan bílstjórahurðina.
Það sem var undarlegt var að þau voru líka að koma þegar ekki var svissað á
bílnum. Þetta var svona frekar random dæmi og ágerðist með tímanum. Hugsaði
með mér að þetta væri varla gott en það var ekkert annað í stöðunni en að klára
daginn.

Hér erum við svo búin með seinasta kaflann og síðustu bílar að skila sér úr
seinustu ferðinni:
Image

Image

Image

Jæja - loks kemur Michel og allir fara í bílana og setja í gang og þá byrjar
dramað. Hr. hvítur fer ekki í gang. Alveg steindauður og ekkert gerist.

Gaman gaman.....

Allavega - bíllinn var dreginn upp á Ringhaus og ýtt inn í skúr. Þar fór ég
að skoða hvað gætiverið að en fann ekkert til að byrja með - öll öryggi í lagi.
Svo hugsaði ég að þetta hlyti að tengjast þessum smelluhljóðum. Byrjaði á því
að troða hendinni þarna inn og ýta aðeins til vírasúpunni. Viti menn þá fór
bíllinn að starta en gekk ekki - þe. sprengdi ekki. Fór að skoða hvað var
þarna inni og þá kom í ljós að þarna var eitt relay og svo eitt stærra box.
Opnaði relayið og stærra boxið og þau voru bæði rennblaut. Eftir smá google
komst ég að því að þetta var relay fyrir inniljósin og svo stærra boxið var
control unit fyrir central læsinguna.

Allavega - hvað sem ég reyndi þá fór dýrið ekki í gang. Þannig að nú var
það eina í stöðunni að senda SMS til Dóminikanska lýðveldisins þar sem þeir
Sebastian og Oliver voru í fríi.

Skömmu seinna kom símtal frá þeim félögum og hófst þá debug vinna yfir
Atlantsála. Ég var látinn rífa allskonar drasl í burtu til að athuga hinar
og þessar tengingar og hluti en allt kom fyrir ekki. Undir lokin var þá farið að
gruna þjófavarnarmódúlinn sem fylgdi S50 vélinni (EWS).

Það sem varð á endanum úr er að ég myndi hringja í neyðarþjónustu BMW strax
daginn eftir og fá tæknimann á staðinn sem gæti lesið af bílnum og séð af
hverju hann færi ekki í gang.

Úff farið að minna á heimsóknina á síðasta ári - bilaður bíll á Ringhaus...
Last edited by bimmer on Wed 30. Sep 2009 12:27, edited 1 time in total.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby Geysir » Wed 15. Aug 2007 00:59

Ouch ekki gaman að lenda í þessu.
:x

En það virðist þó vera stuð.
Geysir Golf - Kíktu í Golf
'98 W210 E240
'90 GSX750F - The Ugly Bastard
User avatar
Geysir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 673
Joined: Sun 29. Jul 2007 16:51
Location: Laugardalur eða Geysir.

Postby zazou » Wed 15. Aug 2007 11:08

Djöðveikt 8)

OT: allt þetta krass og krot á brautinni, er þetta graffiti?
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby arnibjorn » Wed 15. Aug 2007 11:09

Alltaf vesen á þessu E30 drasli! :evil: :lol:
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby Angelic0- » Wed 15. Aug 2007 12:08

arnibjorn wrote:Alltaf vesen á þessu E30 drasli! :evil: :lol:


Satt... hahaha... :lol:
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby Djofullinn » Wed 15. Aug 2007 12:09

Skil ekki hvað fólk er að eyða peningum í einhver E30 fjós....
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby Zeus » Wed 15. Aug 2007 16:38

Litla ævintýrið sem verður úr þessum ferðum hjá þér! Efa samt alls ekki hversu gaman þetta er og þvílík upplifun 8)

Gangi þér vel að koma HR. Hvíta í gang!
User avatar
Zeus
Kassabílstjóri
 
Posts: 247
Joined: Sun 10. Dec 2006 14:45

Postby SteiniDJ » Wed 15. Aug 2007 17:05

bimmer wrote:Hér er eitt tæpt atriði frá því um helgina.
http://www.onno.is/thordur/almennt/BMW_Fahrerlehrgang/oh_shit.wmv


Magnað myndband :O
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Postby finnbogi » Wed 15. Aug 2007 17:49

Djofullinn wrote:Skil ekki hvað fólk er að eyða peningum í einhver E30 fjós....



Rocco Siffredi - TEAM WANNABE
M-Roadster | E30 325i | Porsche Cayenne Turbo | E39 530d Touring | E60 545i | E46 325i


;)



en djöfull er gaman hjá þér nafni fyrir utan þetta start problemo

öfunda þig mikið , magnað líka hve detaild þeir fara í allar beygjur með ykkur í þessu
Þórður Finnbogi
GSM:663-2524

BMW M5 E39 1999 veðlaus :D
BMW 316i E36 1999 kraftlaus
Image
finnbogi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 2645
Joined: Mon 19. Apr 2004 02:07
Location: á M5 á hlið eða í læknis leik með systur þinni

Postby ///MR HUNG » Wed 15. Aug 2007 18:35

Þetta var alveg keppnis redding hjá þér 8)
330D E46 TOURING MTECH I
320D E46 TOURING
318I E46 (TI 3VOM)

E46 Í RIFI:
330XD TOURING
320D TOURING
318I SEDAN 98-04
323I coupe 99


E46/E39 ///M5 Í RIFI

S:8204469


Image
User avatar
///MR HUNG
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6493
Joined: Tue 31. Dec 2002 23:10
Location: Hrafnista

Postby bimmer » Thu 16. Aug 2007 11:38

Last edited by bimmer on Sun 17. Mar 2024 12:39, edited 1 time in total.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby Einarsss » Thu 16. Aug 2007 12:05

Þú varst ágætlega nálægt því að fara inní hliðina á mótorhjólagaur á 6:40 :shock: ... kom uppí hausinn á mér *hjúkk*
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby bimmer » Thu 16. Aug 2007 12:13

einarsss wrote:Þú varst ágætlega nálægt því að fara inní hliðina á mótorhjólagaur á 6:40 :shock: ... kom uppí hausinn á mér *hjúkk*


Jamm - hann hægði á sér við/eftir beygjuna - verulega óþægilegt að
fara svona nálægt honum.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby fart » Thu 16. Aug 2007 13:33

Þessir mótorhjólakauðar eru alltaf fyrir manni.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

PreviousNext

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 15 guests