Sælt veri fólkið.
Mig langaði að sýna ykkur nýja vagninn. Ég flutti hingað til Edinborgar nýlega og hef verið að leita að flottum BMW síðan snemma í sumar. Ég byrjaði á að leita að E30 Touring en eftir að vera kominn út langaði mig mikið að prófa eitthvað nýtt.
Ég var hellst að leita að E36 328i en því miður er ekki mikið til af þeim hérna í 4dyra eða Touring útgáfum. Ég reyndar missti af einum í seinustu viku. Var virkilega svekktur yfir því
En eftir að vera búinn að vafra frá mér allt vit fór ég eitthvað að skoða Audi bílana og rakst á þennan líka fína bíl. Ákvað að renna mér niður til Manchester og skoða. Tók lest í morgun og tók með mér aur og var búinn að ganga frá bráðabirgðatryggingu til vonar og vara.
Bíllinn uppfyllti allar væntingar og ég skellti mér á hann. Er virkilega ánægður með kaggann hingað til. Mjög skemmtilegur fjölskyldu/akstursbíll. Ekki sakar að verð á þessu er MUUN hagstæðara en heima
Svo hef ég líka alltaf verið veikur fyrir hvítum bílum og mér finnst þessi bera litinn huggulega vel.
En jæja bíllinn er sem sagt:
Audi A4 AVANT 2.8 V6 Quattro (RHD)
Nýskráður 01.09.1997
ek. 92.000 mílur
Þjónustusaga frá upphafi með reikningabunka og skoðunarblöðum seinustu ár.
Sport tau innrétting
Topplúga
16" Audi felgur
S-Line stýri
Eftir aksturinn heim bæði á hraðbraut og á sveitavegum hér nálægt Edinborg verð ég að segja að bíllinn kom mér á óvart. Hann vinnur virkilega vel, togar skemmtilega og það var virkilega gaman að keyra hann á mjóu sveitavegunum seinasta spölinn. Vandist furðu fljótt að keyra öfugu megin í bílnum.
Þessum verður líklegast ekki mikið breytt á meðan maður er í námi en mig kítlar virkilega í BBS felgur, smá lækkun og Kerscher grill (eða hvernig sem það er skrifað). Sjáum til hvernig það fer.
Hér eru svo myndir af kagganum:
