Bíllinn er E30 316i árgerð 1990 og keyrður 144þús frá upphafi. Örfáir eigendur og varla neitt teljanlegt ryð nema aðallega í sílsunum. Hann mun byrja að sjást á götunni innan skamms en áður en að því kemur ætla ég að gera hann jafnvel sætari
Það sem er að honum er að bensínleiðslan er öll götótt og því hauglekur bensíni af bílnum. Fjárfest verður í nýrri bensíndælu fljótlega og skipt um allt heila klabbið.
Einnig virðist geymirinn missa hleðsluna og því er hann alltaf rafmagnslaus eftir að hafa staðið í einhvern tíma. Allt þetta verður lagað en ég geri ráð fyrir að bíllinn mun fara að sjást reglulega á götunni fyrir enda ágúst


