http://www.mbl.is/mm/sport/frett.html?nid=1280989
Quote:
Sveinn Elías Elíasson, úr Fjölni, er í þriðja sæti þegar fyrri keppnisdegi í tugþraut á Evrópumeistaramótin unglinga, 19 ára og yngri er lokið. Sveinn Elías hefur hlotið 4.007 stig og aðeins 70 stigum á eftir þeim sem efstur er. Sveinn var í 5. sæti eftir þrjár greinar en vann sig upp í tveimur síðustu greinunum, hástökki og 400 m hlaupi. Hann varð í 7. - 11. sæti í hástökki með 1,92 metra og náði síðan öðrum besta tímanum í 400 m hlaupi, 48,54 sekúndum. Árangur Sveins er afar góður, ekki síst vegna þess að hann er aðeins 17 ára og er einu til tveimur árum yngri en þeir sem eru í toppbaráttu í tugþrautinni. Sveinn Elías hefur keppni í fyrramálið í 110 m grindahlaup, því næst tekur við kringlukast, þá stangarstökki, því næst spjótkast og loks 1.500 m hlaup.
Efstir maður í þrautinni er með 4.077 stig og sá er annar hefur önglað saman 4.071 stigi. Sveinn Elías er með 4.007 stig og sá sem situr í fjórða sæti hefur 3.939 stig.
Í fyrstu grein dagsins kom Sveinn Elías fyrstur í mark í 100 m hlaupi á 10,73 sekúndum og bætti drengjamet sitt um 16/100 úr sekúndu en það setti hann í fyrra. Þá var Sveinn Elías aðeins 1/100 úr sekúndur frá 18 ára gömlu meti Jóns Arnars Magnússonar í unglingaflokki (19-20 ára). Þá er tími Sveins Elíasar í sá besti sem Íslendingur hefur náð í 100 m hlaupi í fimm ár.
Þá stökk hann 6,98 metra í langstökki og varð fjórði en átti erfiðara uppdráttar í kúluvarpinu, hafnaði í 19. sæti með 12,92 metra.
Alls hófu 22 keppendur tugþrautina í morgun og hefur enginn þeirra helst úr lestinni.
