Theo Jansen hannar furðuverur sem feykjast um hollenskar strendur. Hollendingurinn Theo Jansen er hreyfiaflsskúlptúristi. Hann er listamaður sem nýtir sér tækni og verkfræði til að búa til stórkostlegar furðuverur með ótal fætur sem knúnar eru áfram af veðri og vindum.
Jansen lærði vísindi við háskólann í Delft í Hollandi og bjó árið 1980 til fljúgandi undirskál sem raunverulega gat flogið. Hún sveif yfir Delft og kom almenningi og lögreglunni í talsvert uppnám.
Síðastliðin tíu ár hefur hugur hans dvalið við að búa til nýjar lífverur úr gulum plaströrum. Hann býr til flóknar beinagrindur sem geta gengið í vindi.
Á vefsíðunni www.strandbeest.com er hægt að skoða myndbönd af nokkrum verum úr smiðju Jansens og er ótrúlegt að sjá risastórar skepnurnar líða um sandinn líkt og krabbadýr.
Lokamarkmið Jansens er að skepnurnar hans verði í stórum hjörðum á ströndunum og lifi þar eigin lífi.
Hahaha þetta finnst mér drullufyndið.
Illa vanheill á geði? spyr maður sem ekki veit
Annars sá ég einhvern sjónvarpsþátt fyrir stuttu síðan um kappann og hann er alveg að gera góða hluti...
Fáránlega mögnuð smíðin á þessu og bilað gott verkvit.
Hérna er pilturinn við störf og nýtir sér fyrsta flokks tækni
Nokkur myndbönd á YouTube sem ég fann
-----
Svo rakst á eina BMW-auglýsingu með honum í fararbroddi
Magnaður tappi. Enough said.
Users browsing this forum: No registered users and 8 guests
You cannot post new topics in this forum You cannot reply to topics in this forum You cannot edit your posts in this forum You cannot delete your posts in this forum