Quote:
Vísir, 06. júlí. 2007 15:54
Maður handtekinn í Hollandi fyrir að múta foreldrum Madeleine McCann
Hollenska lögreglan hefur handtekið 39 ára gamlan karlmann fyrir að reyna að kúga fé út úr foreldrum Madeleine McCann sem hvarf af hótelherbergi á sumardvalarstaðnum Praia da Luz í Portúgal í byrjun maí.
Hann krafðist hárra fjárhæða í skiptum fyrir upplýsingar sem hann sagðist hafa um dvalarstað stúlkunnar og mannræningja hennar. Maðurinn játaði eftir yfirheyrslur að hafa skáldað söguna upp.
Maðurinn sem er atvinnulaus sendi foreldrum Madeleine sex tölvuskeyti frá internetkaffihúsi og atvinnuleysisskrifstofu í Hollandi. Hann var handtekinn í Eindoven á miðvikudag. Maðurinn verður líklega ákærður fyrir mútur og á yfir höfði sér allt að fjögurra ára fangelsi.
Á Spáni eru málaferli hafin gegn pari sem einnig reyndi að kúga fé út úr foreldrum Madeleine í lok júní.
Uhm... haa? þetta var á visir.is..
http://www.visir.is/article/20070706/FRETTIR02/70706055
Enn ein villan? skil ekki alveg...
Það er talað um í titli fréttar að hann hafi verið handtekinn fyrir að múta þeim, svo neðar talað um að hann hafi verið að kúga fé úr þeim.. en svo verður hann ákærður fyrir mútur
