Fyrsta tölvan mín með 486sx 33mhz örgjörva sem ég skipti út fyrir 486dx2 örgjörva sem var 66mhz. Man ekki hvað minnið var, minnir að ég hafi endað í 16mb og hörðum disk sem var eitthvað í kringum 400mb. Svo var aðal shittið að vera með compressað partition því það STÆKKAÐI harðadiskinn

Maður varð bara að passa sig á því að compressa ekki þann disk sem var með stýrikerfinu
Einhverntíman ætluðum ég og bróðir minn að vera svaka sniðugir og búa til auka pláss á harðadisknum og hentum öllum þeim fælum sem við héldum að við þyrftum ekkert, þ.m.t. öllum .hlp fælum. Endaði auðvitað með crashi. Veit ekki hvað m&p borguðu mikið fyrir enduruppsetningu á tölvunum okkar og viðgerðum, svo og vírushreinsunum. En með fikti þá endaði þetta með því að við fórum að gera þetta bara allt sjálfir.
Ég eignaðist aldrei Pentium 1 en bróðir minn eignaðist Pentium II tölvu sem var 233 Mhz með 4.3 GB hörðum diski, 64 í innraminni og Windows 95. Sjálfur eignaðist ég svo Pentium III tölvu með Tyan Tiger II móðurborði sem var fyrir tvo örgjörva en ég gerðist aldrei svo frakkur að kaupa seinni örgjörvann
Fyrsta internetmódemið sem ég notaði var 33,6k módem sem "virkaði betur" en 56k módem svo ég skipti aldrei upp. Þá var ég tengdur hjá Islandia og stundaði mIRC. Ég var líka svakalega svalur og bjó til heimasíður í Frontpage 3.0 eða 4.0 og lódaði einhverntíman inn á eina þeirra 200mb myndbandi og skildi ekkert afhverju ég gat ekki fengið það til að virka á netinu
Þá var WS FTP 95 aðal málið
Ég man hins vegar ekki svo glöggt hvaða fyrsta netfang ég var með en það var Hotmail minnir mig. Svo notaði maður vísir.is e-mail og mig minnir að ég hafi verið með mail.is e-mail ?
Ég komst svo fljótt að því að ég nennti ekki að hafa web-based e-mail og síðan þá hef ég bara viljað nota pop3... og hef átt mjög mörg svoleiðis á mismunandi lénum sem ég hef unnið við/átt.
Elsta pop3 e-mailið mitt fyrir utan eitthvað sameiginlegt Islandia e-mail var þó
asgeir@911mlm.com sem ég fékk þegar ég var að búa til einhverja Multi Level Marketing síðu fyrir égveitekkihvaðmörgumárum haha
Stunts, Street road og Larry 1 voru bestu leikirnir. Það var samt erfitt að komast inn í Larry því ég kunni sama og enga ensku en maður komst yfirleitt inn í hann ef maður valdi alltaf lengsta svarmöguleikann í spurningunum
