Tók meguairs session í bílnum í dag og endaði á taka nokkra myndir. Allavega það sem ég gerði við bílinn var að ég þreif hann heví vel með sápunni frá Meguiars og þurrkaði vel í gærkvöldi, lét síðan bílinn standa yfir nótt í bílageymslunni til að vera laus við allt vatn sem kemur í listum eða sem leynist í skorum.
Vaknaði svo í morgun notaði Clay kittið og fór yfir allan bílinn, Maður byrjar á að sprauta með quick detailer sem fylgir kittinu og fer svo með leirinn yfir svæðið sem er blaut.. endar svo á að þurrka af með supreme shine microfiber klút sem fylgir líka.
Næsta skref var að fara svo með Polisher á lakkið og nuddaði það af með öðru svona microfiber klút. Þetta var erfiðara en ég bjóst við og tekur góðan tíma að þurrka polisherinn af.
Þriðja skrefið er að bóna með Next generation Tech waxinu og passa uppá að fara ss 2x yfir svæðið í öfuga átt á miðað við fyrri yfirferðina svo bónið endist betur.
Á meðan ég lét bóna liggja á lakkinu skellti ég á super shine dekkja glans á og þreif rúðurnar með einhverjum spes glerhreinsi frá meguiars að sjálfsögðu
Svo tók ég restina af bóninu af með microfiber klút.
Ég var annars að fá í hendurnar meguiars pakka frá amazon.com og verslaði ég allt sem mér datt í hug... Hugsaði að minn hluti sendingunni hafi kostað mig um 12 þúsund og var í þessu felguhreinsir, felgubursti, sápa, bón, glerhreinsir, 4x microfiber klútar, microfiber þurrk klútu, þurrkhandklæði,clay kit, svona bón applier dæmi.
Aðeins ódýrara heldur en að versla þetta hérna heima
Anywayz hérna eru skárstu myndirnar.
Mynd nr1 er í uppáhaldi hjá mér
