Schulii wrote:
Ég skal vera sá fyrsti til að segja það hérna að ég er mjög sammála henni um eitt atriði.
Það hefur oftar en einu sinni og oftar en tvisvar gerst eftir banaslys eða alvarleg umferðarslys að menn standa upp og garga "Sko, nú verður bara að fara að setja upp aksturssvæði til að fyrirbyggja svona!!!"
Ég er algjörlega sannfærður um það að hraðakstur og slys vegna ofsaaksturs hafa EKKERT með það að gera hvort til sé æfingasvæði sem ökumenn nota. Ég held meira að segja að þvert á móti verði menn bara enn heitari í akstrinum þegar þeir yfirgefa svoleiðis svæði. Það er í það minnsta mín reynsla frá því ég var yngri þegar við fjölmenntum á kvartmílubrautinni og keyrðum svo eins og bavínar aftur í bæinn.
Tökum sem dæmi þessa stráka sem tóku framúr sjúkrabílnum. Haldiði virkilega að þessar týpur keyri bara rólega alla leið á Akureyri og á þjóðvegunum almennt af því að aðra hverja helgi skjótast þeir í klukkutíma á æfingabraut að leika sér??
Jájá, auðvitað átti hún ekki að blanda eiturlyfjaneytendum og nauðgurum inn í umræðuna og nota sem samlíkingu en hún er þó málefnaleg sem ekki er hægt að segja um marga af þeim sem eru að gagnrýna hana sem nota orðalag eins og "Helvítis tussa" og morðhótanir og fleira. Þar á ég auðvitað fyrst og fremst við aðila á hinu spjallsvæðinu.
Og jú, auðvitað yrði frábært að fá akstursbraut og ekkert nema gott um það að segja en ég endurtek bara að ég held að það myndi engu breyta um aksturslag almennt á þjóðvegunum.
Hér verð ég að vera algjörlega ósammála! Í þau skipti þegar ég hef keyrt heim eftir akstur á svona brautum er ég svo pollrólegur að ég þarf að passa uppá að vera ekki undir hámarkshraða. Maður er endurnærður og slakur.
Tek það þó fram að ég er lítið fyrir hraðann einn og sér, fyrir mig er það hröðunin og
beygjurnar 