fart wrote:
Svenni Tiger wrote:
Thrullerinn wrote:
fart wrote:
Þú ert drekinn... ha? hann kallaði mig bara dreka???!!!??
Rosalega fúlt að heyra því að ég veit að Agli var annt um bílinn, en þetta er alveg dæmalaust dæmigert. Það halda allir að þeir verði ofurbílstjórar við að setjast undir stýri á ofursportbíl.
Ég held að Ísland eigi HEIMSMET í tjónuðum ofurbílum miðað við höfðatölu og innflutta ofurbíla.
Benni og Widowmakerinn (sá eini sem hefur komið hingað)
Carrera GT (einn af 2)
Ford GT (eini)
Carrera 4S 997
maður gæti haldið lengi áfram...
Segir það manni eitthvað.. kanski eru vegirnir ekki nógu góðir, kanski er ekki nógu heitt, kanski eitthvað annað.
Hrikalega leiðinlegt að heyra þetta með Fordinn... Greyjið ökumaðurinn... stundum er betja að hemja sig í stað þess að reyna að búa til góða sögu og enda í blöðunum.
Hvaða bíll er þetta? er hann í viðgerð eða eitthvað?

eitthvað sem
ég hafði aldrei heyrt um..
hann er nú svo fáranlega langt frá því að kallast ofursportbíll/supercar....og er ekkert merkilegur
líka fáránlega langt frá því að vera mikið skemmdur, en á íslenskan mælikvarða myndi ég kalla þetta ofursportbíl, tæplega 400 hestar og keramic bremsur.
Þetta er allavega fínasta græja...
Annars er leiðinlegt að sjá t.d. á L2C hvað það virðist hlakka í mörgum - oft stutt í öfundsýkina.
Minni bara á að það er fullt af mönnum hér á spjallinu sem annað hvort eiga verulega öfluga og rándýra bíla eða keyra þá reglulega og engin myndi vilja vera þekktur fyrir að stúta "high profile" bíl...
En hvað eiga menn að gera? Sitja heima eða keyra?