bebecar wrote:Elli í Chile
Forvitnilegur staður

hehe já hér er ágætt að vera nema það er "vetur" hérna eða eitthvað sem þeir kalla vetur. 2-12°C og rigning hummmm hvurslags vetur er það nú
Ég er í skipasmíðastöð sem herinn hérna á sem heitir ASMAR í Talchuano þetta er ca. suður frá Santiago.
Er að stjórna uppsetningu á tækjum sem verið er að setja um borð í nýtt fjölveiði skip. Fyrirtækið sem ég vinn hjá seldi þeim ákveðinn búnað.
Ferðalagið hingað tekur um 30 klst. Reykjavík > JFK new york > La guardia New york > Miami > Santiago > Conseption. Ég var orðinn alveg ruglaður þegar ég komst á leiðarenda.
Kom á síðasta mánudag og fer á laugardaginn.
Það á að sjósetja hérna nýtt herskip í dag ætli ég reyni ekki að taka af því video og koma því inn á myndasvæðið sem og nokkrum myndum ad dótinu hérna. Þetta er svo hrikalega stórt allt saman.