Jæja loxins, samkoma Við ætlum að hittast á hafnarbakkanum klukkan 20:00 á fimmtudaginn 5. september. ætlunin er að hittast þarna kl 20 og fara síðan á feitan rúnt kl 21, sýna okkur og sjá aðra, ef þið skiljið Stífbónun er skylda og verðum við öll (ef það eru stúlkur í hópnum ) að biðja um gott veður!
Last edited by Gunni on Fri 06. Sep 2002 02:10, edited 1 time in total.
Jæja þessi samkoma tókst nú alveg ágætlega 10 bimmar í heildina í smáralind.. vonandi eykst sú tala á næstu samkomum, ? hvað líður langur tími milli samkoma? 2-3 vikur? verður þetta alltaf fast á fimmtudögum?
DXERON
Vildi að ég væri á bimmanum mínum á samkomu!!
Ætli maður reyni ekki að mæta líka næst þegar það verður samkoma. Þá verður maður vonandi búnn að fá bílinn. Ákvað í vor að panta mér bíl frá Þýskalandi og hann á vonandi að vera kominn í næstu viku. Pantaði mér 328 e36, búinn að bíða djöfull lengi eftir honum og þetta verður fyrsti bimminn minn. Held samt að ég sjái ekki eftir að hafa gert þessi kaup!
Gunni wrote:ú beibe, það er sennilega ansi nettur burri. hvernig er hann á litinn?? hvaða árg ?? er hann ekki bsk ? hurðir aukahlutir og annað slíkt ?
Þetta er 96' árgerð og keyrður 74þúsund. En hann er reyndar með þjónustubók og solleiðis þannig að þetta ætti að vera ok. Beinskiptur að sjálfsögðu! 4 dyra og M-fjöðrun. Einnig M-svuntur, og eitthvað fleira... maður mætir bara á næstu samkomu og kíkir á hina bimmana vonandi... þ.e. ef maður er búinn að fá sinn.