Sælir kraftsmenn, ég heiti Örvar
Ætla aðeins að uppfæra þennan þráð, ég er búinn að eiga þennan 10 mánuði núna og búinn að keyra hann fullt. Tók langa helgi síðustu helgi til að hressa aðeins upp á kaggann. Það voru nokkrir hlutir sem var kominn timi til að ditta að.
Komst í ágætis aðstöðu þar sem bíllinn gat staðið alla helgina.
Við byrjuðum á því að skipta um miðstöðvarmótor. Hann var farinn að
hljóma virkilega hrikalega.
Gott að vera með bentleyinn með sér
Reif síðan allt úr skottinu og tók aftursætin úr, fundum þennan skemmtilega perrahanska undir aftursætinu. Vil ekki vita hvað fyrrverandi eigandi var að gera þarna
Skiptum um bensíndæluna en er hún undir aftursætunum.
Tók ekki myndir því að ég var allur út í bensíni en ég er með mynd af Gulla sem var tilbúinn að skvetta á mig vatni ef það myndi kvikna í mér

.
Klúðraði aðeins ísetningunni og missti smá plaststykki ofaní. Því festist bensíndælan ekki rétt. Þetta hélt í 9 daga þangað til bensíndælan datt líka ofaní tankinn. Því opnaði ég tankinn aftur og fiskaði upp plastið og dæluna upp úr tanknum, setti þetta rétt saman og þetta hefur aldrei verið betra. Walbro dæla.
Eftir þetta þá skipti ég út premium sound system gæðastöffinu sem hefur verið rosalega flott á sínum tíma en ég átti auka 6x9 hátalara sem ég skipti út fyrir afturhátalarana.
Byrjaði á því að skera úr afturhillunni.
Hérna eru hátalarnir komnir í. Eins og sést þá eru hátalarnir 4-way. Man ekki hversu öflugir þeir eru en ég fann þá í geymslunni, var alveg búinn að gleyma því að ég ætti þá til. Virka fantavel
Þurftum aðeins að skera úr afturhillunni
Svo tengdi ég magnarann í jörð og í rafgeiminn
Búinn að tengja allt.
Næsta mál á dagskrá er að skipta um púst. Ég keypti púst af danna djöfli sem er bara með einum endakút, það ætti að flæða aðeins betur heldur en núverandi kerfi, en endakúturinn hjá mér er farinn í tvennt.