Daginn eftir að við komum til Munchen var sofið út og svo farið í
skoðunarferð um verksmiðju BMW.
Oliver og félagar voru svo miður sín yfir því að gírskiptingin bilaði í hvíta
að þeir ákváðu að redda okkur sárabót - prívat skoðunartúr um verksmiðjuna.
Góða sárabótin!!!!!

Vorum mættir um kl. 11 og fékk undirritaður nett flog þegar þessi kerra
var spottuð fyrir framan verksmiðjuna:

En gleðin var fljót að dvína því að þetta var ekki ekta Koenig Competition
heldur kit skrípi byggt á Fiero og sjálfskipt þar að auki!!!

Hörmung að sjá þetta púst!!!
Drifum okkur síðan að inngangi 5 þar sem við hittum Oliver og félaga hans.
Við vorum allir skveraðir í sloppa og fengum visitor passa (þurftum í
staðinn að skilja eftir skilríki). Ekki mátti hafa myndavélar með sem er
mjög miður!!!
Byrjuðum á því að labba framhjá málmsteypunni þar sem vélarblokkir eru
steyptar og voru þvílíkar stæður þar fyrir utan af blokkum.
Fórum síðan í aðal verksmiðjulínuna þarna sem framleiðir nýja þristinn.
Við fengum að fylgja framleiðslulínunni alveg frá tómri skelinni að fullkláruðum
bíl. Þetta var verulega áhugavert að sjá hvernig bíllinn tók smám saman
á sig mynd. Sæmi hefur nú marga fjöruna sopið í BMW rifi/samsetningu
og hann saup hveljur þegar mælaborð var sett í á 5 sekúndum og
sóllúgur á innan við 10. Einnig var töff að sjá alla driflínunna (vél, kassi,
drif, etc) fara undir í einu skrefi.
Við vorum þarna 3 gestir með 3 fylgdarmenn frá BMW, Oliver, vin hans og
svo einhvern gúru sem allt vissi. Bara góð þjónusta

Fengum að skoða
mun meira en venjulegi túristarúnturinn. Mættum einum slíkum en þar
voru ca. 30 manns með einn guide.
Anyways, eftir að þristurinn var tilbúinn til að vera sendur frá verksmiðju
þá fórum við og skoðuðum véladeildina. GÓÐAN DAGINN!!!!!!!!!!
Þarna mátti sjá allskonar flott gums, 6, 8, 10 og 12 cylindra vélar, standard
og ///M. Vorum alveg til í að taka eins og einn vagn fullan af nýjum
///M mótorum og lauma þeim út
Sáum líka prófunarbekki og svo vélar sem höfðu alveg fengið að
finna fyrir því, t.d. nýja V8 M3 vél í mauki eftir að stimpilstöng yfirgaf
samkvæmið út um blokkina
Þetta var mjög áhugaverður rúntur.
Eftir þetta var túrinn búinn og við kvöddum Oliver og félaga og fengum
skilríkin okkar aftur.
Það verður að skrifast á okkur það klúður að hafa ekki smellt neinum
myndum af okkur í sloppunum eða við verksmiðjuna

Nú var haldið á BMW safnið sem er þarna rétt hjá. Á leiðinni eru
höfuðstöðvarnar:



Hér má sjá nýja safnið bakvið okkur Sæma.

Það safn er hins vegar ekki tilbúið og er því safnið í tímabundnu "húsnæði"
sem er jú TJALD!!!

Hér má svo sjá nokkra af bílunum sem við skoðuðum á safninu:










Restin af deginum fór bara í afslöppun og fórum síðan að borða á einum
slappasta Indverska stað sem sögur fara af

PS: Allar myndir eru teknar af Mr. Boom en photoshoppaðar af undirrituðum.
_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR

Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...