Jæja, þá er kominn tími á að skipta um fóðringar í framfjöðruninni á 523.
18" felgur og M Sport fjöðrun + slæmir malarvegir = ekki gott
Fór sem sagt í smá bíltúr með fjölskylduna frá Höfnum á Reykjanesi að Krísuvík. Ekki góðir vegir þar. Malarvegir, slæmir, eins og að keyra á þvottabretti mest allan tímann. Tek það fram að ég keyrði MJÖG hægt, og reyndi eins og ég gat að fara varlega
Eftir þessa svaðilför heyrist mikið bank og brestir í fjöðruninni, var aðeins byrjað að heyrast en nú er allt farið held ég. Einnig er hann bara leiðinlegur í keyrslu, enda líka sprakk annar framdemparinn við þessi læti líka.
Bara leiðindamál, en hann ætti líka að vera eins og nýr í akstri eftir að það verður búið að skipta um það sem þarf að skipta um.
Mínar spurningar eru sem sagt: Hvaða fóðringar ætti ég að kaupa? Allar? Bara einhverjar sérstakar? Hvað heitir það sem ég þarf að kaupa þá og hvert er best að snúa sér í þessum málum, og hvað má ég búast við að eyða miklum pening í þetta?
_________________
BMW E39 523i '99 M Parallels "seldur"
VW Passat '98 "seldur"
VW Golf GTI '98 "seldur"
BMW E30 320i M-tech I '86 "dáinn"
