Eurotrip 2007, rúmlega 2000hp í fjórum bílum...

Hér skal spjalla um BMW.

Postby Stanky » Tue 29. May 2007 09:18

fart wrote:Explorer...


Prufaðu firefox :)

www.mozilla.com
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Postby fart » Tue 29. May 2007 09:19

Svezel var ekki lengi að breðgaðst við beiðninni.

Linkur sem virkar : http://bmwkraftur.pjus.is/svezel/saemaslide.wmv
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Einarsss » Tue 29. May 2007 09:35

virkar í firefox en ekki IE
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby Logi » Tue 29. May 2007 10:11

Það er greinilegt að þið hafið gert það besta mögulega úr gærdeginum!

Ég kom heim seinnipartinn í gær eftir að hafa upplifað 3 alveg geðveika daga í DE - ég þakka kærlega fyrir mig!

Það var svolítið undarlegt á föstudagskvöldið að vera að blasta frá Nurnberg til Nurburgring, 6 manns á fjórum bílum, og sá aflminnsti var E39 M5 :?

Laugardagurinn var svo enn skemmtilegri, 2 x 200 km hraðbrautarakstur og drift keppni með ágætistilþrifum inn á milli.

Sunnudagurinn toppaði þetta svo allt saman með akstri on the Ring... Fékk að fara með Sæma á M5, Baldri á Carlsson og Þórði á Rngtoy.

Takk fyrir mig aftur og skemmið ykkur vel það sem eftir er!

Vonandi er ekki rigning á SPA í dag.
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður

Postby fart » Tue 29. May 2007 11:09

Stuðstuðstuð..

Image

Image
Last edited by fart on Tue 29. May 2007 14:43, edited 3 times in total.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby zazou » Tue 29. May 2007 11:12

fart wrote:Svezel var ekki lengi að breðgaðst við beiðninni.

Linkur sem virkar : http://bmwkraftur.pjus.is/svezel/saemaslide.wmv


:king:
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby gstuning » Tue 29. May 2007 11:22

Sæmi bara í gírnum þarna,

Mér stekkur bara bros að sjá video frá íslendingum af hringnum,
þumlar upp
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby fart » Tue 29. May 2007 11:45

Svalur í hringekjunni með thumbs up :lol:

http://picasaweb.google.com/hans.schnei ... 4286771746
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby HPH » Tue 29. May 2007 12:52

hér eru tvær sem ég fann.
http://picasaweb.google.com/hans.schnei ... 0833828626
http://picasaweb.google.com/hans.schnei ... 4306215426
En hvenar er svo áætlað að koma heim aftur?
E46 330ix touring.
BMW er lífstíll. Við erum 10árum á undan öllum öðrum.
User avatar
HPH
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3209
Joined: Sun 04. Jan 2004 15:36
Location: inn í bílnum þínum.

Postby Eggert » Tue 29. May 2007 13:11

DJÖFULL er sá græni svalur þarna á myndinni :shock: 8)

Og hvernig er það strákar... fáum við eitthvað af sjá af Fiorano hérna :-k
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby JOGA » Tue 29. May 2007 22:27

Soundar flott sá græni og fínir taktar hjá Sæma 8)
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur

Postby saemi » Tue 29. May 2007 23:13

Var þetta mögulega besti dagur í heimi hingað til???

Við erum að tala um dag dauðans í dag. Í dag var haldið af stað eldsnemma í morgunsárið. Fórnarkostnaðurinn var ræs og sjæn klukkan 5:45 (við veljum alltaf BMW eða Boeing tölur til að vakna við, s.s. 635, 745, 757, 737, 850 osfrvs.).

Frank hérna á Ringhaus sá að sjálfsögðu um að ræsa eina af sínum blómarósum út til að skera niður fyrir okkur skinkupylsuna og sækja rúnstykkin... en hún var ekki ánægð með að vakna klukkan 4 í stað 6 venjulega. Eftir staðgóðan morgunverð að venju var haldið af stað til Spa í Belgíu. Þar átti BE hluti hópsins (með vísan í Wannabe) bókaðan tíma á track day sem Lancer register.com eitthvað dæmi stóð fyrir. Þórður hafði meldað sig og mig á þessa samkomu, Sæmi nafni var með sem okkar prívat ljósmyndari og aðstoðarökumaöur, en aðrir kusu að standa hjá og sleppa þessu gullna tækifæri :roll:

Eftir eins og hálfs tíma akstur ókum við 5 á 4 bílum, (M5 onno, M5 rouge, M3 og Bens SL) inn í hjarta Spa Francorchamps þar sem bretar streymdu að ásamt einstaka annara þjóða kvikindum. Mest var um Evo, Skyline, Imprezur M3csl. Honda 2000 var þarna og Mazda RX8, Galant sást líka ásamt einstaka Caterham Lotus og Ferrari, Noble og einstaka bland í poka þess utan. Flottur E60 M5 TOURING 8) 8) 8) Sem sagt, hitt og þetta í gangi á staðnum.

Byrjað var á að skrá sig og fara á fund til að heyra reglurnar og fá armband til að komast inn. Þetta var búið um 9 leytið, þá var rigningarsuddi og þungbúið. Brautin blaut en ekki soaking. Haldið var upp í pit og gert klárt fyrir akstur. Byrjað var á M5-unum, þar sem Onno er betri í bleytu en Rngtoy. Eftir nokkra hringi var keyrt aftur inn að skúr númer 6 til að varpa öndinni. Ekkert hafði sést af Herra Ferrari, Sveinbirni sjálfum og Baldri áður en við fórum út á braut að keyra, en eftir smá eftirgrenslan kom í ljós að þeir voru búnir að fá nóg af því að bíða og horfa á rigninguna, stóðu SL-inn átján bláa upp á Ringhaus strax aftur. So much for BE........ :roll:

Ég sem hafði keypt sæti fyrir farþega og allt,... En nú bara keyrði ég einn, enginn til að vera farþegi og Þórður tók úllendúllendoff á hvítan og bláan :lol: Nei það var blái sem fékk að kenna á því í byrjun, enda betur skóaður til átaka þar sem hvíti er á semi-slickum.

Til að gera langa sögu stutta, nóg er frá að segja, þá fór að stytta upp eftir hádegi og brautin þornaði. Þá var snögglega skipt yfir í M3 Rngtoy og farið að flengja Lancera og Imprezur. Jafnvel M3csl fengu að kenna á hvíta ofurleiftrinu. Seinnpartinn var brostið á með sól og blíðu, bros á allra vörum nema undrunarsvipur á bretunum þegar leiftrið hvíta át þá uppi hvern af öðrum. það voru ófáir sem spurðu hvað væri undir húddinu á gripnum þegar stoppað var í pittinum.

Til allra lukku vorum við lausir við öll óhöpp og vandræði. Eina sem var var gangtruflun í Onno vegna mikils vatnsausturs í loftsíustæðin. En aðrir voru ekki jafn heppnir og sjá mátti Caterham snúast út af, Civic líka langt út í möl, Impressu bomba á vegg, EVO snúast út í vegg og Hondu 2000 fara flatt á 160 þegar hann var að reyna að halda í við Þórð á M3-inum. Þetta var frekar scary, taka fram úr gæjanum á 200, gjóa auguum á hvorn annan og síðan um leið og komið var fram úr heyra þórð segja "Nei hann missti hann". Þórður sá hann þá síga út af brautinni á of miklum hraða, missa stjórn og svo straujaði hann í slædi út af brautinni, yfir grasið og inn í vegg. Ekki góð tilfinning þegar maður vissi að hann hefði verið á 160-180km hraða þar sem við fórum fram úr á 200. En sem betur fer slasaðist enginn, einungis bíllinn sem skemmdist.. eyðilagðist frekar.

Keyrt var til klukkan 18. Hlé var gert í hádeginu í klukkutíma í mat, en annars var keyrt allan daginn. Ég og Þórður nýttum tímann nokkuð vel, Þórður þó betur en ég en ætli hann hafi ekki keyrt í svona 4 tíma samtals, ég í svona 2 samtals. Nokkuð gott, Þórður sennilega með einna mesta tímann á brautinni. Við þurftum að fara 2svar niður í bæ (fylltum þar áður en við byrjuðum) til að taka bensín. Þetta er eina skiptið sem ég hef tekið bensín 3svar sinnum sama dag á sömu bensínstöðinni!!!! Við erum að tala um eyðslu upp á 30L/Km 8)

Að þessu loknu var svo lagt af stað aftur upp á Ringhaus, þar sem gist er í síðasta sinn í bili. Þar fyrir hittum við Frank við komu okkar þar sem hann var að spranga um milli húsa. Tókum hann léttu tali og meðal annars kom til tals track bíllinn sem hann leigir út. Hann var klesstur í fyrradag og stóð þarna fyrir utan frekar sorgmæddur á svip með samfallin nýru og brotnar augabrúnir. Við vorum að spá í að taka bílinn á leigu en það varð ekki af. Sá sem tók hann á leigu smellti honum utan í vegrið og eyðilagði gripinn þann daginn. Gaurinn pantaði sér svo ófáa vodka í kók um kvöldið til að kyngja reikningnum upp á 5000 EUR sagði Frank, og hafði ýmislegt að segja frá gaurnum. Þetta var nefnilega ekki í fyrsta sinn sem hann þurfti að borga út bíl, um daginn fór hann nefnilega í heimsreisu á FIAT Panda. Já ég veit, Fiat PANDA!!! Sumir hafa sjálfspíningarhvöt í stærra lagi. Hann fór með hann á verkstæði á glænýju "drive through" verkstæði fyrir FIAT. Það vildi ekki betur en svo til hjá honum að hann rakst eitthvað í gírana í bílnum með hann í gangi svo bíllinn fór eiginlega orðrétt í þetta "Drive Through". Fór með hendurnar á stýrinu, hangandi út um bílinn í gegnum verkstæðið, inn í sölusalinn og endaði á nýjum FIAT sem eigandinn stóð við hliðina á nýbúinn að eignast nýja bílinn sinn. Jæja, gott þetta var ekki BMW, þá hefði reikningurinn verið vel sverari.

Í fyrramálið verður svo lagt í hann aftur, hópurinn óvænt þynnst aðeins þar sem herr Alpina leiddist rigningin í dag og hélt ásamt Baldri áleiðis norður. Þeir keyrðu víst í 12 tíma til Hamborgar í rigningu og röð :cry: Ekki gaman en við kunnum þeim þakkir fyrir að hafa dregið í burtu úrkomuna.

Næsta skref er svo að fara til Tauber manna með bílana, snurfusa eitt og annað, bremsur á rauða, hvíti í yfirhal og kannski fleira. Svo verður það prívat túr í BMW A/G í Munchen, Hamann heimsóttir og fleira. Sjáum hvert lukkan dregur okkur á næstunni :P

Kveðja heim, TSSJJJUUUUUUS.
Last edited by saemi on Tue 29. May 2007 23:59, edited 2 times in total.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Djofullinn » Tue 29. May 2007 23:25

Held að þetta sé skemmtilegasti þráður á kraftinum frá upphafi :lol:
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby noyan » Tue 29. May 2007 23:37

Djofullinn wrote:Held að þetta sé skemmtilegasti þráður á kraftinum frá upphafi :lol:


Sammála...

Verð að fara svona eurotrip asap
Magnús
noyan
Getawaybílstjóri
 
Posts: 580
Joined: Sat 06. Nov 2004 18:20

Postby Aron Andrew » Tue 29. May 2007 23:40

Þið eruð meistarar 8)
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

PreviousNext

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 39 guests