Vörum við ekki að tala um M bíla?
Málið er bara að þetta gengur ekki til lengdar svona...
Reynið að sjá fyrir ykkur svona 6 ár fram í tímann.
Þá verður M3 með V8 vél og líklega um 450-500 hestöfl og sennilega um 1600 kíló að þyngd. M5 verður með V10 vél og 500-600 hestöfl og örugglega að nálgast tvö tonn....
M7 gæti hugsanlega verið kominn á markað og hann væri þá væntanlega um 700 hestöfl og troðinn af útbúnaði og um 2.5 tonn á þyngd.
Ferrari menn væru þá komnir með sitt andsvar við hestaflakapphlaupinu sem væri annaðhvort mjög léttur bíll að skila um 600 hestöflum, eða þá að þeir færu Veyron leiðina og framleiddu bíl með yfir 1000 hestafla vél - þetta er gjörsamlega glórulaust og það felst engin ánægja í þessu... þetta er bara "gluttony" og ekkert annað.
"What it is: Gluttony is an inordinate desire to consume more than that which one requires."
Þó maður hafi bílinn léttann og úr Carbon að hluta þá er alveg hægt að henda með rafmagnsrúðum og leðri... maður hefur nú ekki nein alvöru not fyrir aðra hluti en rafmagn í rúðum, vökvastýri og lofkælingu. Flest annað er bara óþarfi.
Gluttony er náttúrulega ein af dauðasyndunum sjö
http://deadlysins.com/sins/gluttony.html
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road