bebecar wrote:hvar endar þetta eiginlega?
Ég held að þetta endi hvergi, heldur fer þetta bara í hringi.
Sjáðu til, jú, Polo-inn núna er stærri heldur en fyrsti golfinn.
En það má ekki líta á þetta þannig að allir bílarnir séu að stækka.
Ef þú fylgist með stökum nöfnum, jú, þá er þetta þróunin. "Polo" er
núna stærri en fyrsti "Golf";
Aftur á móti má ekki gleyma því að það koma nýjir bílar í staðinn.
Það mætti segja að litli Skodinn (Felicia?) taki við af gömlum Polo, og Polo taki við af Golf. Skodinn er líka í svipuðum gæðaklassa eins og Polo-inn
var og Polo-inn kominn í Golf klassann.
Ég held ekki að það séu neinir stærðarflokkar sem eru skildir eftir og
hætta að birtast, þeir birtast bara í öðru formi undir öðrum nöfnum.
Á sama hátt tökum við eftir því að E46 er svipaður að stærð og E34.
og E39 svipaður ekki langt frá E32.
En það má ekki gleyma því, að sama skapi, að BMW er núna að búa til 1-línu og 2-línu, er það ekki bara nýju "þristarnir" í stærð sem þér hentar prýðilega?