Vandræðalegasta sem ég hef lent í: Nýkominn með prófið
Var á Hyundai Getz - Var um vetur og svell hálka.
Var að keyra útúr hverfinu mínu.
Tók eftir því að það var laus skóreim á skónum mínum, beygði mig niður og ákvað að laga skóna (var bara í íbúðargötu, engin umferð og var á svona 25km/h).
Þegar ég leit upp var bíllinn kominn yfir á hinn helminginn, þannig að ég rykki í stýrið með þeim afleiðingum að bíllinn byrjar að snúast eins og belja á svelli í svellhálkunni sem hafði myndast vegna rigningu um daginn. Ég horfi bara útum hliðarrúðuna hægra megin, framrúðuna og hliðarrúðuna vinstra megin til skiptis og vona það besta. Ég sver það, þetta var svona 10 mínútur að líða þangað til bíllinn ákvað að stoppa.
Bíllinn ákvað að stoppa UPP Á SANDHÓL, vaggaði eins og vegasalt.
Stútaði 2 felgum, sprengdi 3 dekk, framstuðari, bæði brettin, spyrna og 2 kastarar í stuðaranum og það kom svona 15cm^2 gat á bensíntankinn.
+++ Ákvað að vera mega sniðugur og athuga hvort það væri ekki hægt að gera við þetta svart og sykurlaust. Fór á mesta skítaverkstæði í heimi og ákvað að láta þá gera við þetta. Reikningurinn var uppá sirka 350.000kr. Ég spurði hvort þeir gætu ekki látið þetta fara í gegnum trygginarnar, það gekk.
Svo var þetta svo ótrúlega léleg viðgerð að ég þurfti að setja bílinn á annað verkstæði til að gera við eftir hitt verkstæðið. (gaurinn setti tréskrúfur í stuðaran, festi hann bara einhverstaðar og sparstlaði yfir

:):) )
kv,
haukur