by íbbi_ » Sun 10. Aug 2003 23:42
en.. þar sem ég veit að það er stranglega bannað að hallmæla bmw þar sem þeir virðast vera heilagir,:twisted: þá þekki ég nú líka marga sem eiga góða bmw-a og þeir klikka aldrei.. :
dæmi, 94 525ix. ekin 130 það eina sem skipt hefur verið um í þessum bíl síðan hann var nýr eru framdemparar og það var núna í sumar.
veit um annan 525ix sem er eins,
veit um 750 sem flær ekki feilpúst.. en reyndar vill flest rafmagnsdót í honum klikka dáldið.
en einmitt sá bmw sem ég hef versta reynslu af er einmitt 316 bíll,
líka annar bíll se ég "kannast við" hef þekkt 3 stráka sem hafa átt hann og hann er aldrei til friðs, það er 518 bíll,
bílar bila.. allir skiptir engu máli hvað þeir heita eða hvaðan þeir koma.
kunningi minn er mikill benz áhuga maður og er búnað eiga marga og þeir eru síður en svo bilanafríir, þekkti líka strák sem átti toyotu corollu sem var aldrei til friðs,
sá bíll sem hefur reynst mér langbest af öllum bílum var mitsubishi sem aftur a móti á aldrei að vera til friðs.
pabbi minn átti kia sportage í 4 eða 5 ár og keyrði hann rúmlega 70þús km og aldrei klikkaði einn einasti hlutur í bílnum.það eru bílar sem eiga að framleiddir bilaðir?
ég er nokkuð mikið á eagle talon tsi komin yfir 200þúsund km og búið að hjakkast á honum núna í 11 ár og aldrei slær hann feilpúst..
held að bmw líði líka dáldið fyrir það að fólk álítur þetta jú vera mikla og dýra bíla og þegar þeir bila þá verður eigandin mun fúlli heldur en ef ódýrari bíll hefði bilað.
og p.s ég myndi nú ekki segja að japanskir bílar væru ekki jafn vel smíðaðir og aðrir bílar.. meðal margra ástæðna fyrir vinsældum japanskra bíla er sú að þetta eru vel hannaðir og smíðaðir bílar sem kostar lítið að reka meðal annars vegna þess að þessir bílar hafa átt það til að bila að meðaltali mun minna en aðrir bílar.
það er svo önnur saga hversu spennandi eða "skemmtilegir" þeir eru,
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll