Zyklus wrote:
Hvað ertu annars að læra?
Annars varðandi það að setja alvöru pening í þetta, er ekki orðið eitthvað vesen fyrir erlenda ríkisborgara að stofna reikninga í BNA (út af öllu þessu terrorista dæmi)?
T.d. á Oanda þá þarf maður held ég að stofna reikning í BNA og svo þarf að senda ljósrit af skilríkjum.
Var ekkert vesen fyrir skólafélaga þinn að setja pening í þetta?
Ég er menntaður viðskiptafræðingur og er að fara í framhaldsnám í haust í hagfræði eða alþjóðaviðskiptum. Er enn með báða möguleika opna.
Annars virtist ekki vera mikið mál fyrir þennan skóla félaga minn að setja pening í þetta. Ég reyndar þekkti hann ekkert sérlega vel og veit ekki hvaða síðu hann notaði.
Svo sýnist mér t.d. FXCM bjóða upp á Paypal þannig að þetta ætti ekkert að vera neitt svaka mál. Flyt svo til Skotlands í sumar og þar gæti ég hugsanlega kíkt á þetta með skoskum reikning.
Þekki þetta með sálfræðina. Ég er með mjög lítið "spilafíknargen" í mér og á held ég ágætlega auðvelt með að hætta áður en stefnir í óefni.
Takk fyrir linkinn. Ég kíki á þetta
