Bjössi wrote:En gæti þetta ekki ýtt enn frekar undir að menn reyni að stinga lögregluna af
Tjah eflaust.
Þá gæti dæmið verið sett upp þannig:
Setjum að Jón eigi 5 milljón króna bíl og grf. að bílar séu teknir og þeim ekki skilað aftur ef lögreglan gerir þá upptæka (ég reyndar held að það sé ekki svo...).
Lögreglan er á eftir Jóni svo hann ákveður að stinga hana af.
Jón keyrir beinustu leið heim og þar er bróðir Jóns. Jón þýtur inn eins og skrattinn sé á hælunum á honum og lögreglan á eftir honum. Hann fær bróðir sinn til að vera sviptur (annað hvort það eða 5 milljónir down the drain) og svo borgar Jón sektina og bróðir hans reddaði honum.
Langsótt.... en menn hafa nú verið að stinga lögguna af og verið sóttir daginn eftir. Nægur tími til að búa til áætlun.
Ég held nú samt að maður fái bílinn aftur, bara þegar maður er búinn að "róa sig"






