hlynurst wrote:Man að Sveinbjörn (Alpina) sagði mér frá 330D sem virtist hafa endalaust afl á ferðinni!
Þessir þriggja lítra svartolíuskvettarar frá BMW hafa fengið ótrúlega dóma, þykja með betri díselvélum í sínum flokki og eiga víst ótrúlega vel við bílinn. Svo ég vitni nú enn og aftur í Evo þá tóku þeir í prufun á móti hvorum öðrum 325i Touring og 330D Touring og sögðu (að mig minni, ég get náð í greinina ef fólk vill nánari lýsingu) að valið væri smekksatriði! Mig grunar reyndar að dísillinn hafi verið mun ódýrari í rekstri.
Svo er BMW 330D eini dísilbíllinn sem hefur komist í Evo Car of The Year, en hún hefur hingað til verið unnin af Porsche 996 Carrera, Porsche 996 GT3, Porsche 996 Turbo, Pagani Zonda C12S og Honda NSX Type-R. Ekki slæmur félagsskapur það og þeir voru bara ánægðir með olíubrennslu Bimmann


