http://www.vifilfell.is wrote:Viking Gylltur
Víking gylltur er marg verðlaunaður gæðabjór. Bjórinn hlaut gullverðlaun alþjólegur gæðastofnunarinna Monde Selection árið 1992, silfurverðlaun árið 1997 og nú gullverðlaun aftur árið 2002. Gullverðlaunin sem Víking gylltur fær árið 2002 eru enn ein staðfestingin á gæðum bjórsins og sýna það og sanna svo ekki verður um villst að hann stenst fyllilega samanburð við bestu bjóra í heimi – og gott betur.
Víking Gylltur er flokki sterkra lagerbjóra. Í hann er notað nokkuð mikið af humlum sem gefa bjórnum áberandi biturleika sem einmitt er mjög eftirsóttur af vönum bjóráhugamönnum. Í hann er notaður maís og sykur sem gerir hann minna saðsaman en jafnframt meira frískandi. Þetta er gullinn úrvalsbjór sem sækir fyrirmynd sína til evrópskra Pilsen bjóra. Víking gylltur fæst í 0,5 lítra dósum, 0,33 lítra flöskum og dósum. Alkahólmagn 5,6%.
Users browsing this forum: No registered users and 5 guests