by Knud » Fri 20. Apr 2007 03:14
Það fer náttúrulega eftir olíunni sem þú ert með á bílnum, er long life olía á bílnum eða mobil 1?
Fer líka eftir akstrinum hvað er sniðugt að láta líða langt á milli olíuskipta, hvort þetta er mikið langkeyrsla eða stutt keyrsla.
Ef þú ert með mobil 1 væri sniðugt að skipta um olíu á kannski eftir 7500km, og ef hann brennir því er jafnvel sniðugt að skipta út fyrir 5w40
Ég þekki það bara ekki hvaða olía á að vera á þessum bílum, en olíuljósið er ljós sem mér væri allavega mjög illa við að væri að kvikna. Ef það er lítið á kvarðanum, endilega skipta um
Olíuskipti er frekar ódýrt viðhald en mjög svo veigamikið.
Olían missir líka smureiginleikana eftir ákveðin tíma, akstur og blabla
samt ábyggilega einhverjir hérna fróðari um þetta en ég vona bara að þetta hjálpi eitthvað