Sælir núna hefur sjálfskiptingin á bílnum hjá mér verið alveg í ruglinu,
situr í drive og er alveg eðlilegur rétt á meðan hann er kaldur en vill svo
detta í failsafe þegar hann er orðinn heitur.
Ég fór með bílinn uppí B&L til að láta ath. með þetta og þeir gera það og
prufa að bæta olíu á skiptinguna og skola útur henni en engu virtist það
breyta og sögðu mér að hægt væri að ath með hvort hægt væri að gera
við þetta en þá væri áætlaður kostnaður 300-500 þúsund en lágmark
rukkað um 300 þúsund þó ekkert sé hægt að gera við hana. Þau bjóða
mér uppgerða skiptingu á 800 þúsund. og einhvað í kringum milljón
kallinn komin í.
Svo nú er ég að spá í hvort ég geti ekki náð verðinu einhvað niður með
því að finna uppgerða sjálfskiptinu í útlandinu og flytja hana inn sjálfur.
Ég býst nú við því en þá vantar mér að vita eftir hverju ég á að leita, er
einhver aðili eða fyrirtæki úti sem sérhæfir sig og eða hefur gott orðspor
af sér þarna úti sem ég gæti verslað af og einhver bent mér á heimasíðu
eða símanúmer?
Svo þetta er s.s. í bíl 535 e39 árgerð 98.
Er þetta samskonar skipting og er í einhverjum öðrum bíl?
Ég veit að hljóma einsog hálviti en það væri fínt ef fólk gæti gefið mér
einhver ráð um hvern andskotann ég ætti að gera í stöðunni því þetta er
fkn dýrt!



