Langaði að deila þessu með ykkur líka, þráttfyrir að vera ekki nálægt því að vera BMW.
Til að gera langa sögu stutta þá fluttum við pabbi inn annað stk af Toyotu Camry inn til landins ásamt felgum og svonna.
Svo létum við Art-Bílalist filma hann fyrir okkur, massa og setja ýmsa hluti á hann, fengum okkur einanúmer á bílinn sem var einmitt númerið á bílnum hjá föður konunnar.
Eitthvað sem hún hafði haldið fast í frá barnsaldri
Þetta er semsagt svonna suprize gjöf handa konunni hans pabba.
Smelltum gjafaborða utan um hann og svonna lítur hann út!
Svo erum við að bíða eftir að konan komi heim og sjái þetta tæki í hlaðinu!
