fart wrote:
Einsii wrote:
hahaha Lötu þýskarar.. þeir tóku bara 911 og gerðu streched limma úr honum
Þessir gaurar verða að fara að taka smá áhættu í hönnun áðuren allir verða búinir að fá leið á bílunum þeirra.
Ástæða þess að Porsche hefur verið með jöfnustu og bestu aukningu í sölu bíla í heiminum... er vegna þess að á þeim bæ vilja með Evolution, ekki revolution.
Þeir vita hvað menn vilja og delivera það.
Munið t.d. Cayenne þegar hann kom út. Það fannst varla maður sem fílaði lookið, í dag eru ansi margir sammála um að þetta er best útlitslega heppanði SUV seinni ára.
Úff - Ég er ennþá á þeirri skoðun að gamli Cayenne sé með því ljótasta. En það myndi sko ekki stoppa mig í að kaupa einn slíkann. Hinsvegar fíla ég þann nýja vel.
En auðvitað er þetta rétt hjá Sveini og það er fleiri sem spilar inn í sem er bein afleiðing "evolution" í stað "revolution" og það er t.d. að eldri gerðirnar halda sér mjög vel, útlitslega, í verði og mekkanískt séð. Allir Porsche 911 eru svalir... alveg sama hve gamlir þeir eru.
Varðandi Panamera þá er ekkert sem bendir til annars en sá bíll verði það dýrasta sem fæst hjá Porsche. Semsagt, dýrari en topp útgáfur 911. Mögulega á svipaðan máta og forðum með 928.
Þessi bíll er hannaður sem 4 door frá grunni og topp útgáfan mun líklega fá V10 frá Carrera GT, með Twin Turbo V8 (frá Cayenne) fyrir þá sem eru ekki til í að splæsa í dýrustu gerðina.
V10 Panamera á eftir að kosta SHITLOADS!