Jæja alltaf eitthvað að gerast.
Var að tæta og trylla eftir samkomuna á miðvikudaginn þegar kúplingspedalinn
fór bara alveg niður í gólf og ekki aftur upp í 2-3 skiptingunni.
Um leið kom óhljóð og bíllinn drap á sér.
Gaman gaman. Náði að láta mig renna út í hliðargötu. Bíllinn vildi ekki
starta - kom bara smá click hljóð og ekkert meir. Svo var kúplingspedalinn
funky og kúplingin var föst frá.
Sæmi gúru kom á sjöunni og eftir smá skoðun drógum við dýrið upp í
BogL þaðan sem ég hafði náð í hann deginum áður
Daginn eftir fóru Bjarki og co í að rífa allt í sundur og fundu það út að
ofur UUC kúplingin var brotin í spað. Kúplingsdiskurinn hafði brotnað frá miðjunni og
breyttist kúplingin í einhverskonar Moulinex græju sem klippti framan af
startaranum og tætti allt.
Allavega - útkoman var handónýt kúpling og swinghjól ásamt brotnum
startara. Hafði samband við UUC og þeir báðu um myndir af þessum
ótrúlega atburði - höfðu aldrei heyrt um svona. Eftir að þeir höfðu skoðað
myndirnar og séð að það var ekki búið að grilla kúplinguna með snuði
og rugli þá sögðu þeir að þeir myndu senda mér annað sett - þetta væri
ábyrgðarmál.
Þannig að nú er nýtt sett á leiðinni og sá blái óvígur fram yfir páska

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR

Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...