Þetta er skynjari sem er tengdur í bremsubúnaðinn. Er bara vinstra megin, allavega hjá mér, og þú þarft að skipta um þetta ef ljósið í mælaborðinu kviknar hjá þér. Hann kostaði hjá mér 1800kr hjá B&L.
Þakka þér alveg kærlega fyrir. nú er ekkert að vanbúnaði til að skipta um klossa og er mér bara farið að hlakka til þess.
Nú get ég sagt að þessi klúbbur hefur sparað mér peninga því ég hefði örugglega ekki farið út í þetta nema að treysta sjálfum mér alveg, sem ég nú geri. Læt ykkur vita hvernig fer.