Aðeins að sjæna krossarann til fyrir sumarið
Jæjahhh er búinn að vera í dag að púsla hjólinu mínu saman
Ég sandblés stellið og pústið, grunnaði og málaði svart, og kemur þrusuvel út, einnig er búið að taka mótorinn alveg í gegn.
Og skipti um pakkdósir í frammdempurum.
Sveifaráslegur, stimpilskipti og nýjar pakkningar í flestöllu, búinn að taka pústið í gegn og ýmsislegt smotterý, held áfram á morgun, þangað til verða þessar myndir að duga, ég fékk ekki myndavél fyrr enn ég var kominn svona langt.
Svona var það þegar ég byrjaði að tæta í sundur
Óli félagi minn að rífa í sundur meðan ég var á "myndaflippi" á meðan.
Aðeins verið að þrífa stellið fyrir sandblásningu.
Svo ákvað ég að kíkja aðeins á vélina og sjá ástandið á innvolsinu.
P.s. (það var ekkert að hjólinu þegar ég byrjaði að rífa í sundur

)
Smávegis sót á bullukollinum
Síðan fór ég í það að byrja rífa kinnarnar í sundur enn á engar myndir af því, ég skoðaði innaní gírkassann, fyrr eigandi sagði mér að hann hafi verið allur tekinn upp þar síðasta sumar og það var rétt hjá honum, allt sem nýtt þar!
AFSAKA DRASLIÐ SEM ER Á MYNDUNUM.
Síðan fór ég í það eftir að ég loksins sandblés dótið að mála.
Og svo búinn að raða svona miklu saman í bili

Klára vonandi á morgun.
