fart wrote:
bimmer wrote:
Ivan gleymir alveg að allt gengið er í Millet úlpum


Millet fyrirbærið var alveg svakalegt, Það var röð langt út úr útilíf þegar sending kom. Ég á meira að segja aðra af þessum sem ég keypti enn í dag.
En svona til að rifja upp dellurnar... maður gekk í gengum þetta allt..
1. Kínaskór í massavís, seldir í gámavís af Hagkaupum
2. Adidas Glanshettugallinn í breikið (Henson ekki til umræðu )
3. Millet úlpurnar (Panda kom aldrei til greina)
4 Nokia gúmístígvél, ekkert Viking takk
4. Hugo-Boss kasmír mittisjakkarnir
5. Don-Cano dellan
6. Pumpu strigastórnir
7 DBS X-S-1 BMW hjólið
8. Köflótta (taflborðspeysan)
9. LEVIS dellan í kringum 1990
Það sem maður hefur ekki keypt af svona rugli.......

Úff já, þessi upptalning rifjar upp ýmislegt.
Gallabuxur með mynd á rassvasanum, flugmannaleðurjakkinn með loðkraganum, mokkasínurnar, kínakraga skyrturnar, hálsklútana, bindin með doppunum, litrík vesti, ekki verra ef það var klútur í stíl

Peysurnar úr Sævari Karli, helst með mynd af hreindýri eða í nógu og mörgum litum. Rauðu buxurnar, Timberland skórnir, osfr, osfr.
Síðast en ekki síst átti ég sko Hugo Boss mittisjakka í gulu

Með svörtu stroffi. Langfínast.
Þetta er að verða frekar sorgleg upptalning er það ekki, fyndið samt.
G
Ég hef nú ekki talið mig gamlan enda átti ég svona gallabuxur og flugmannaleðurjakka sem krakki.
Kannast nú samt við ansi margt af þessu og man eftir því. Aðallega frá öldnum frændum (á aldur við ykkur gamlingjana).
Og jújú, átti Nokia gúmmístígvél um það leiti sem ég byrjaði að labba.