1995 M3 111/356 - Update bls 422 04.07.23

Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!

Postby Einarsss » Mon 05. Mar 2007 21:13

Axel Jóhann wrote:
JOGA wrote:
einarsss wrote:
arnibjorn wrote:
IvanAnders wrote:Mig langar í þennan skúr :!:


Mig langar í þennan bíl :lol:



Mig langar í skúr ... punktur :lol:


Segjum tveir :cry:



Á skúr, með gryfju! 8)


þá hefuru amk stað fyrir þetta mótorhjól
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby Axel Jóhann » Mon 05. Mar 2007 21:56

Það er hluti af því niðrí gryfju. :oops: Enn það er að verða eins og nýtt. 8)
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Postby fart » Tue 06. Mar 2007 08:37

Maður þarf svolítð að finna upp hjólið þegar óreyndur mechanic eins og ég tekur að sér DIY verkefni.

Ég reif undan afturfjöðrunina í gær, tók ekki nema 5mín c.a. enda var ég búinn að tjakka upp og taka dekkin undan.

Pretty straight forward job.

síðan kom vandamálið. Ég hafði áður farið og keypt nýjar fóðringar fyrir afturdemparana, og eftir hot-tip nr2 frá GunnaGST þá keypti ég E46M3 cabrio fóðringar. Þær voru að sjálfsögðu til á lager, ólíkt M3GT dótinu sem ég pantaði fyrir framdemparana.

Það komu rær á H&R dempurunum, en það vantaði skinnurnar, þannig ég gat ómögulega smellt dempurunum undir, en það breytti ekki öllu þar sem að ég bara fattaði ekki hvernig hæðarstillingarnar fara í afturspyrnurnar.

Svo í morgun fattaði ég þetta. Fann þessar snilldar leiðbeiningar á netinu fyrir nokkrum dögum. Ég gaf mér góðan tíma í að skoða þær og þá kveikti ég.

http://www.bmw-m.net/TechProc/H&R%20COI ... %202.0.pdf

Þannig að vonandi í kvöld fer allt dótið í. Þ.e. ef skinnurnar eru til fyrir afturdemparana, og framdemparafóðringarnar koma í hús.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Axel Jóhann » Tue 06. Mar 2007 11:54

Jæja, ég væri til í að eiga nægann pening til að taka almennilega í gegn. :)
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Postby fart » Tue 06. Mar 2007 20:24

Jæja, maður verður að vera raunsær. Ég tók u-begju áðan. Ákvað að setja orginal fjöðrunina undir að aftan aftur. Ég var farinn að reka mig á of marga veggi í þessu. Það sem fyllti mælinn var að til að koma hæðarstillunum fyrir að aftan þarf að leysa dálítið meira í sundur en ég gerði ráð fyrir. Ég hugsaði bara með mér það það væri helst til of mikið rifrildi fyrir mig, enda voru þar hlutir sem höfðu greinilega ekki verið skrúfaðir í sundur lengi og því pikkfastir.

Anyway.. taldi bara betra að láta Tuningverkstæðið sjá um þennan part.

Ég ætlá þó að reyna sjálfur við framdemparana þegar ég fæ hlutina mín á morgun. Sjáum til hvort að það gengur ekki betur, enda búið að rífa það nýlega í sundur.

Í staðin tók ég hliðarlistana af og pússaði upp sárin.

Allavega líður mér bara vel með ákvörðunina.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby fart » Mon 12. Mar 2007 19:51

Smá update.

Var búinn að setja fjöðrunina undir að framan og fór í test túr, en þá heyrðist eitthvað leiðinda klúnk, þannig að ég fór aftur heim og reif undan. Líklegasta skýringin var að ég hefði ekki hert nógu vel upp á boltanum sem heldur gormnum og demparafóðringunni á demparanum sjálfum.

Það dró dálítinn kjark úr mér en eftir nett spjall við GunnaGST þá keypti ég mér stærri Wise-Grip og lét vaða. Botnherti stuffið og er búinn að setja undir öðru megin að framan. Er að bíða eftir ballancestangarenda sem ég skemmti í öllum hamagangnum til að geta klárað hinum megin.

Annað sem ég er búinn að gera eru hvít afturljós, svartir listar á fram og afturstuðara og smávægilegt dót.

Það sem er á leiðinni er framsplitterinn, svartir hliðarlistar og útvarp.

Vonandi kemst ég með bílinn á Laugardag í bremsur, en það mun taka 1-2 vikur að klára. Í leiðinni verður afturfjöðrunin sett í og ef allt gengur upp verður fyrsta test-drive 1. apríl.

Annað sem pirrar mig óendanlega á þessum bíl mínum er að það er búið að fylla upp í þar sem roundelið kemur á skottlokið, og svo húddið.

Líklegast læt ég bara verða að því að kauap mér nýtt húdd og skottlok, og carbon fiber er líklegt, sem verður þó málað.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby JOGA » Mon 12. Mar 2007 20:28

Þarftu að kaupa nýtt húdd og skottlok?

Hvernig var fyllt upp í þetta? Væri ekki séns ef þetta var sparslað að brjóta það upp og láta sprauta þetta upp á nýtt?

Bara hugmynd :wink:

Edit: Gætir prófa að renna yfir með segul og reyna að sjá hvort það er eitthvað sparsl þarna undir...
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur

Postby lulex » Mon 12. Mar 2007 20:42

Image
Image


viva la carbon.. :D
BMW 325i
User avatar
lulex
Getawaybílstjóri
 
Posts: 682
Joined: Sun 26. Dec 2004 23:35

Postby fart » Tue 13. Mar 2007 08:15

Fínn linkur með Carbonið. Ég held samt að ég taki þá hood án rista.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby fart » Tue 13. Mar 2007 08:18

JOGA wrote:Þarftu að kaupa nýtt húdd og skottlok?

Hvernig var fyllt upp í þetta? Væri ekki séns ef þetta var sparslað að brjóta það upp og láta sprauta þetta upp á nýtt?

Bara hugmynd :wink:

Edit: Gætir prófa að renna yfir með segul og reyna að sjá hvort það er eitthvað sparsl þarna undir...


Ágætis hugmynd, ég held samt að nýtt OEM skottlok væti bara betri kostur

Það sem ég geri líklegast er að ég kaupi mér Carbon húdd, skottlok og GT spoilerinn. Sel svo hitt stuffið á ebay, enda ansi margir skrítnir til hér á meginlandinu sem fíla svona modds eins og eru á bílnum mínum. Ristar og roundel delete eru hot items hérna ásamt yfirteigðum dekkjum á pínu felgum.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby saemi » Tue 13. Mar 2007 10:36

fart wrote: Ristar og roundel delete eru hot items hérna ásamt yfirteigðum dekkjum á pínu felgum.


Minnir mig á einn vin okkar í Þýskalandi :lol:
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby fart » Tue 13. Mar 2007 10:54

saemi wrote:
fart wrote: Ristar og roundel delete eru hot items hérna ásamt yfirteigðum dekkjum á pínu felgum.


Minnir mig á einn vin okkar í Þýskalandi :lol:


hehe.. ég er ekki að fatta.. hver er það :oops:
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby saemi » Tue 13. Mar 2007 10:58

Æjj ég var nú bara að hugsa til hans Emils, þetta er svo hallærislegt þetta "german style" dekkjadæmi og uppfyllinguna í merkin. Svona dæmi sem maður skilur bara ekki.

En "on topic", þá líst mér vel á framkvæmdirnar, alltaf gaman að hafa gert svolítið sjálfur í bílnum. Það er eitthvað svo skrýtin tilfinning að fara út að keyra eftir að hafa gert eitthvað svona sjálfur sem VIRKAR líka :lol:
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Jss » Tue 13. Mar 2007 11:13

Þessar breytingar allar hljóma rosalega vel og einmitt alltaf gaman að gera eitthvað svona sjálfur. Ég reyndar læt oft/yfirleitt aðra sjá um viðgerðir fyrir mig.



saemi wrote:Æjj ég var nú bara að hugsa til hans Emils, þetta er svo hallærislegt þetta "german style" dekkjadæmi og uppfyllinguna í merkin. Svona dæmi sem maður skilur bara ekki.

En "on topic", þá líst mér vel á framkvæmdirnar, alltaf gaman að hafa gert svolítið sjálfur í bílnum. Það er eitthvað svo skrýtin tilfinning að fara út að keyra eftir að hafa gert eitthvað svona sjálfur sem VIRKAR líka :lol:


Meinarðu ekki "Turkish style" ? :wink:
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby fart » Tue 13. Mar 2007 11:26

Geðveikt þegar maður býr til eitthvað sem virkar... GLATAÐ þegar maður skemmir eitthvað við það eða hluturinn virkar ekki.

Vonandi virkar þetta í þetta skiptið.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

PreviousNext

Return to Bílar meðlima

Who is online

Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 22 guests

cron