Það var tekið smá session í skúrnum í gær.
Keypti Celis af Sæma og fékk fría ísetningu
Hinn víðfrægi Skúra-Bjarki var á staðnum enda voru þeir félagar í miðjum
klíðum við að rífa mótor úr fimmu sem var nýkomin í hús:
Það voru snör handtök hjá Sæma enda ekki í fyrsta skipti sem hann
setur svona í:
Kannski ekki gáfulegt að hleypa þessum manni í bílinn!!?!?!?!
Á meðan fór ég í það að skipta út listunum í innréttingunni. Var fljótt
strand við að ná helv. miðjustokksstykkinu úr þrátt fyrir hjálp frá
Skúra Bjarka.
Eftir smá pælingar hjá okkur Skúra-Bjarka og símtal til Bjarka í BogL
þá komumst við á sporið:
Á meðan hafði Sæmi klárað ljósin:
Svo fór hann í að halda áfram við að rífa mótorinn úr - ekki alveg sáttur
við liðhlaup Skúra-Bjarka yfir í M5
Ætlaði í fyrstu að reyna að tosa handbremsuhandfangið af og smokra
svo leðurhandfanginu upp á aftur. Við sáum fljótlega að þetta myndi
aldrei ganga þannig að það var ákveðið að rífa handbremsuna alla úr
og setja hina komplett í (átti heilt stykki með leðurhandfangi).
Þetta reyndist hið versta mál þar sem einn boltinn er undir loftstokknum
sem liggur eftir miðjustokknum:
Það var vont að ná honum úr en algjört helvíti að koma honum aftur í.
Þurftum að losa upp allan miðjustokkinn alveg fram í mælaborð
Á meðan á þessu stóð benti Sæmi okkur á að meðan við tveir hefðum
verið að vesenast með þennan bolta hefði hann rifið mótorinn úr:
En allt gekk þetta á endanum og hér er verið að púsla miðjustokknum
aftur saman:
Svo var smá vesen að ná gamla listanum af lokinu yfir kassettutækinu.
Hann var bæði festur með spennum og svo var hann límdur. Vildi helst
ekki skemma listann eða hjarirnar þannig að ég reyndi að ná öllu
bracketinu úr.
Það er hins vegar fest bakvið neðra stykkið í mælaborðinu
þannig að á endanum gafst ég upp við það og spennti listann af lokinu
með skrúfjárni og smá þolinmæði:
Hér er svo lokaútkoman - allt komið í:

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR

Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...