NEXEN - DRIFTER 2006

Hvenær er næsta samkoma? Allt um það hér.

NEXEN - DRIFTER 2006

Postby bjornra » Wed 12. Jul 2006 15:11

Laugardaginn 29. júli verður NEXEN – DRIFTER keppnin haldin. Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur (BÍKR) heldur keppnina í samstarfi við umboðsaðila NEXEN dekkja, MAX 1.

Keppnin verður haldin í Reykjavík en ekki verður keppnisstaður nánar tilkynntur fyrr en viku fyrir keppni. Keppnin mun hefjast kl. 16.00 og gert er ráð fyrir að hún standi til kl. 19. Brautin er um 500 metra löng með tveimur frjálsum svæðum og stórum drifthring. Keyrðar verða tvær umferðir.

Skráning hefst 14. júlí á www.max1.is og er þátttökugjald kr. 7.000,-. Skráning telst fullgild þegar keppandi hefur skráð sig á www.max1.is og greitt þátttökugjald til BÍKR á reikn. 130-26-796 kt: 571177-0569. Skráning stendur til 24. júlí en þeir sem eru fyrstir til að skrá sig ganga fyrir ef takmarka þarf fjölda keppenda.
ATH!!! Allir sem hafa skráð sig fá 40% afslátt af NEXEN sumardekkjum fram að keppni gegn framvísun skráningar og sönnun á greiðslu. Hverjum keppanda er heimilt að hafa 2 aðstoðarmenn en vilji keppandi hafa fleirri aðstoðarmenn þurfa þeir að greiða aðgangseyri kr. 500,- eins og aðrir áhorfendur.

Dómarar verða þrír og má nálgast nánari upplýsingar um stigagjöf og aðrar reglur á www.max1.is. Keppt verður í einum flokki og verða veitt vegleg verðlaun fyrir fyrstu 3 sætin. Einnig verða veitt verðlaun fyrir mestu tilþrifin.

Vonandi mæta sem flestir til keppni og gera þetta enn eftirminnilegri keppni en í fyrra.

Nánari upplýsingar veitir undirritaður.

Fyrir hönd BÍKR,

Björn Ragnarsson
bjorn@bluelagoon.is
s: 660-8808
bjornra
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 29
Joined: Fri 07. Jul 2006 21:36

Re: NEXEN - DRIFTER 2006

Postby srr » Wed 12. Jul 2006 20:11

bjornra wrote:í samstarfi við umboðsaðila NEXEN dekkja, MAX 1

Langaði bara að benda á að MAX 1 er EKKI umboðsaðili Nexen dekkja.
Þeir eru eingöngu söluaðili dekkjanna, það eru fleiri aðilar á Íslandi að flytja inn og selja Nexen dekk en þeir :roll:
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Postby ///M » Tue 27. Feb 2007 13:46

Væri ekki cool að un-sticka þetta?
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Postby saemi » Tue 27. Feb 2007 18:29

///M wrote:Væri ekki cool að un-sticka þetta?


!Jú!
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik


Return to Samkomur

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 9 guests