by saemi » Tue 27. Feb 2007 11:06
Ég vil meina að það eigi ekki að segja kúk og piss, fokk jú, apaheili, hálfviti og þar fram eftir götunum.
Það er alveg hægt að segja sína meiningu á hlutunum án þess að subba allt út á skjánum.
Þetta snýst ekki bara um það HVAÐ er verið að segja, heldur HVERNIG það er sagt. Þetta sem fór hérna inn í fyrstu tilraun var ekkert svaðalegt, svona borderline stuff. Þetta var bara subbulega sagt.
En málið er að ef við látum viðgangast svona orðaforða þá held ég að spjallið endi í frekar miklu subbi og leiðindum frekar en að hafa orðavalið betra. Í þetta tiltekna sinn þá voru engin leiðindi í gangi milli þeirra sem áttu orðaskiptin, ég tók þetta bara út vegna fordæmisins sem þetta gefur fyrir aðra (vá hvað ég hljóma sem lögfræðingur þarna..). Allt í góðu og allir sáttir

Sæmi
E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,