Myndir lagaðar... En já, hér er fréttin ef einhver hefur áhuga
Quote:
Unglingspiltar hafa játað skemmdarverkin að hluta
Skemmdarverk voru framin víðs vegar í Hafnarfirði í fyrrinótt. Á fjórða tug bifreiða voru skemmdar og rúður brotnar víða annars staðar. Þrír piltar á unglingsaldri hafa játað spellvirkin að hluta.
Lögreglumál Þrír piltar á unglingsaldri voru handteknir um hádegisbilið í gær vegna gruns um að þeir hafi framið fjöldamörg skemmdarverk víðs vegar í Hafnarfirði nóttina áður.
Lögreglumál Þrír piltar á unglingsaldri voru handteknir um hádegisbilið í gær vegna gruns um að þeir hafi framið fjöldamörg skemmdarverk víðs vegar í Hafnarfirði nóttina áður. Talið er að tjónið geti numið tugum milljóna króna.
Rúður voru brotnar í að minnsta kosti þrjátíu bifreiðum og margar þeirra dældaðar og rispaðar töluvert. Í nokkrum tilfellum voru járnteinar reknir í gegnum hurðir og vélarhlífar bifreiðanna. Þá voru einnig brotnar rúður í heimahúsi og vinnuskúr í bænum auk þess sem grunur leikur á um að piltarnir, sem eru á aldrinum fimmtán til sautján ára, hafi verið á stolnum bíl. Að sögn lögreglu er ekki loku fyrir það skotið að slóð piltanna liggi víðar, en þeir hafa játað skemmdarverkin að hluta.
Tilkynningar um spellvirkin tóku að streyma inn til lögreglu snemma í gærmorgun og fór ört fjölgandi eftir því sem leið á daginn. Þær fyrstu bárust frá hesthúsahverfinu í Almannadal þar sem fjölmargar bifreiðar höfðu verið skemmdar, en margar þeirra voru nýlegar. Þær tilheyrðu flestar verktökum sem eru þar að störfum um þessar mundir. Auk þess brutu skemmdarvargarnir rúður í þeim hesthúsum sem búið var að setja gler í.
Síðar um daginn bárust tilkynningar frá iðnaðarsvæðinu í Helluhverfi, austan við álverið í Straumsvík, þar sem rúður höfðu verið brotnar í bifreiðum, járnteinar reknir í gegnum hurðir og vélarhlífar og þær dældaðar á ýmsa aðra vegu. Þar urðu stærri vinnuvélar einnig fyrir töluverðum skemmdum af hendi spellvirkjanna.
Lögreglan telur að sömu aðilar hafi verið að verki í öllum tilvikum. Ekki er ljóst hvað þeim gekk til né hvers kyns tól þeir notuðu við verknaðinn.
Piltarnir sem eru í haldi hafa allir komið áður við sögu lögreglu. Sökum ungs aldurs þeirra er málið unnið í samvinnu við barnaverndaryfirvöld en þeir hafa þó allir náð sakhæfisaldri. Rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur nú fengið málið til meðferðar og yfirheyrslur yfir piltunum fóru fram í gærkvöldi.
thordur
@frettabladid.is