Einsii wrote:
Ætli microsoft fari einhvertíma í lagalegar aðgerðir gegn svona þjófnaði á Kerfinu fyrir heimilistölvur ?
Þeir tæknilega séð geta það, en ég hef ekki trú á því að þeir fari að eltast við einhverja einstaklinga. Þeir græða meira á því að hafa allt þetta fólk að nota ólöglegar útgáfur heldur en að láta þá einstaklinga fara yfir í MacOS eða Linux (peningar eru ekki allt, og sérstaklega ekki hjá M$). Fyrirtæki moka svoleiðis peningum í leyfi á Windows og það er það sem heldur þeim gangandi, en ekki einstaklingar eins og við hérna á kraftinum.
Windows Vista er komið til að vera held ég... en það tekur alltaf tíma fyrir fólk og fyrirtæki að aðlagast. Mig grunar að XP muni deyja út á næstu 3 árum líkt og Win2k gerði.
Ultimate útgáfan er að mínu mati með of mikið af óþarfa fídusum svo ég læt Business ed. duga mér. Og það er aldrei að vita nema að í sumar þegar verðið lækkar kannski aðeins og ég er farinn að vinna aftur að ég kaupi mér lykil. En gallinn við það er að ég get ekki bara formattað vélina þegar ég fæ vírus eða bara þegar mér dettur í hug.... heyrði einhversstaðar að hver seldur lykill dugi bara í tvær uppsetningar, og eftir það þarftu annan lykil, $$$$$.