Það er alveg rétt, það er hægt að gera fín kaup þarna - en rétt eins og Thrullerinn segir, því fylgir í flestum tilvikum töluverð áhætta.
Ef maður þekkir persónulega ekki til bílsins sem maður er að bjóða í, þá er það eina sem hægt er að gera að vera búinn að grennslast t.d. fyrir um í ekju.
Ég hef einu sinni verslað bíl þarna fyrir þónokkrum árum síðan (bíllinn hennar Ingsie), ég vissi ekki einu sinni hvaða vél var í honum, hvort hann færi í gang eða neitt. Þú færð hvorki að fara inn í bílana né opna húdd. Í ca. 50% tilvika færðu lykil þegar bíllinn hefur verið keyptur.
Margir hafa gert mjög góð kaup en örugglega álíka margir sem hafa keypt köttinn í sekknum og þar með borgað of mikið fyrir bílinn. Það gefur auga leið að margir þessara bíla hafa verið í afar slæmri umhirðu og bílar hirtir eftir að hafa staðið lengi vegna bilunar.
Engu að síður gaman að taka þátt í þessu og maður fær hálfgert kikk út úr því að taka vera í svona alvöru uppboði.
En þegar maður fylgist stundum með, þá liggur við að um typpastærðarkeppni er að ræða, menn eru hættir að spá í áhættunni sem þessu fylgir og hvað sé skynsamlegt - meira skiptir að ,,vinna" hinn aðilann sem er að bjóða í á móti þér
