oskard wrote:Það er verið að óskar eftir m5 hérna ekki benz,
svona comment eru óþörf
Þráður sem er búinn að vera í gangi í 2 vikur og fara vítt og breitt er nú varla ónýtur þó að mikill BMW áhugamaður hafi fundið eitthvað jákvætt við Benz og viljað koma því á framfæri. Sjálfur er ég að keyra minn fyrsta Benz og er langt því frá að vera heilaþveginn af þeirri tegund (og er alls ekki að segja að allir hér séu heilaþvegnir af BMW heldur). Til dæmis hvatti ég konuna mína óspart til að versla sér BMW í gær og hún gerði það. Málið er hinsvegar það (eins og Sveinbjörn sagði) að s600 Benzinn er að skila alveg fínu afli (svo ekki sé sterkar tekið til orða), sérstaklega þegar maður er kominn svolítið af stað. Ég hef ekki prófað að þrykkja mínum við klukku en hann er gefinn upp 6,1 sek í hundrað (þetta er 140.057 vél en ekki 140.056 sem er gefinn upp 6,6) án þess að ég viti nokkuð um það hversu raunveruleg sú tala er. Til samanburðar hef ég séð '93 M5 gefinn upp 6,2. Hverjar sem staðreyndir þess máls eru (hefði gaman að því að spyrna við M5 bara svona til að vita það og myndi ekki væla neitt þó ég tapaði) er ég alveg viss um að á 2. svo maður tali nú ekki um 3. hundraðinu flengir s600 M5 og það bara nokkuð harkalega (og þá myndi ég væla ef það gerðist ekki).
Þetta er hinsvegar ekkert merkilegt þar sem að annar bíllinnn er sportbíll (og það mjög flottur sportbíll - allavega að mínu mati) en hinn er limmi (og að mínu mati lang flottasti limmi 10. áratugar síðustu aldar).
En vonandi tekst 325ix að finna góðan M5

